Risaróður hjá Stamsundværing N-72-VV

Veiðin hjá netabátunum núna á vertíðinni í Noregi hefur verið nokku góð,


mjög margir bátar eru á netum enn þeir eru nokkur hundruð bátanna og mjög margir þeirra er undir 11 metrum af stærð

ansi margir bátar eru í kringum 14,99 metra langir og einn af þeim er Stamsundværing N-72-VV  sem var smíðaður árið 2001.

núna á vertíðinni þá hefur báturinn fiskað 651 tonn frá 1.janúar og þár af þrisvar komið með meira enn 20 tonn í land

það er nú fullfermi hjá bátnum, enn risaróður kom núna 17.apríl

því þá kom báturinn með í land 29,2 tonn eftir sem fengust í 4 trossur.  

eins og sést á myndunum þá var báturinn gjörsamlega drekkhlaðinn og smekkfullur af fiski,

næst stærsti túrinn hjá bátnum er 22,4 tonn í einni löndun 

Núna í apríl þá hefur báturinn landað alls 287 tonnum í 22 róðrum eða  13,1 tonn í róðri












Myndir Asgeir Hoddevik