Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1915
Gestir í dag: 404
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364065
Samtals gestir: 529024
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:37:04

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

Myndir frá Alla

25.11.2009

Komið til Eyja

Hérna er mynd tekin 1978 og er þarna Albert GK að koma með fullfermi til vestmannaeyja.  Sjá má þarna Örn KE.  enn þekkjast hinir bátarnir sem eru þarna á myndinni

Mynd Aðalsteinn Sveinsson

Skrifað 25.11.2009 kl. 14:34 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Á Reknetum.

Ein mynd tekin um borð í Magnúsi Kristni GK, og spurnig hvort einhver þekki mennina sem sjást.

Mynd Aðalsteinn Sveinsson.

Skrifað 15.11.2009 kl. 4:13 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

6.11.2009

Brælumynd frá 1976

Mynd tekin um borð í Ásbergi RE á landleið með fullfermi að loðnu í ansi þungum sjó.  

Mynd Aðalsteinn Sveinsson.

Skrifað 6.11.2009 kl. 21:59 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit Þessi mynd að neðan er tekin árið 1976 þegar Alli var á Ásbergi RE,  og þarna eru þeir að leggja frá Nordglobal og Reykjaborgin RE er næst á eftir til löndunar.  Mynd Aðalsteinn Sveinsson

Blogg

18.10.2009

Loðnuveiðar á Alberti GK

Hérna kemur ein frá Alla sem er tekin á Alberti GK á loðnuveiðum 1978.  líklegast er Gullberg VE næst Alberti GK. 


Mynd Aðalsteinn Sveinsson

Skrifað 18.10.2009 kl. 18:46 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.10.2009

Ásberg RE

Þessi mynd er nokkuð sérstök.  Þarna var Alli um borð í Ásbergi RE og voru þeir á leið úr norðursjónum þegar aðalvélin bilaði.  Tok þá við rek í einn sólarhring á meðan beðið var eftir Goðanum.  Myndin er tekin þegar Goðinn er að fara taka Ásberg RE í tog.  myndin er tekin 1976.

Mynd Aðalsteinn Sveinsson.

Skrifað 8.10.2009 kl. 15:35 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.10.2009

Boði KE 132

Enn ein myndin frá Alla.  Þessi er tekin á síldinni austur á fjörðum 1981.  Myndin er tekin úr Magnúsi Kristni GK.  Boði KE átti sér ansi mörg systurskip og síðuhöfundur byrjaði sjómennsku sína á einu þannig. Bergi Vigfúsi GK sem áður hét Skógey SF.

Skrifað 1.10.2009 kl. 2:11 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.9.2009

Ari Einarsson GK

Hérna kemur ein flott frá Alla.  myndin er tekinn fyrir austan land um 1981.  Þarna var Alli á Magnúsi Kristin GK og voru þeir´og Ari Einarsson GK báðir á reknetum.  Kalli í Klöpp í Sandgerði og Sólmundur áttu Ara Einarsson GK.


Mynd Aðalsteinn Sveinsson

Skrifað 20.9.2009 kl. 22:41 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.9.2009

Ótitlað

Mynd númer 5.

Hérna kemur ein óþekkt.  Myndin er tekin árið 1978 og báturinn er óþekktur.
hvaða bátur er á myndinni?

Mynd Aðalsteinn Sveinsson

Skrifað 8.9.2009 kl. 19:36 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.8.2009

Bras á loðnu

Mynd númer 4.

4 myndin frá Alla, Mynd tekin árið 1977 um borð í Alberti GK.  ég veit ekki nánar um myndina enn kanski einhver kannist við sig þarna á myndinni.

Mynd Aðalsteinn Sveinsson

Skrifað 30.8.2009 kl. 21:00 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.8.2009

Loðna árið 1977

Þriðja myndin frá Alla er tekin um borð í Alberti GK, enn ég þekki ekki bátinn á myndinni og því set ég það í ykkar hendur að nafngreina hann.  þ.e.a.s ef menn vita hver báturinn er.  

Mynd Aðalsteinn Sveinsson.

Skrifað 19.8.2009 kl. 1:41 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.8.2009

Árið 1981

Næsta mynd frá Alla er tekin um haustið árið 1981, þá um borð í Magnúsi Kristni GK sem Guðjón Bragason gerði út.  Þarna voru þeir á Reknetaveiðum í austfirskum fjörðum.  

Nokkrar myndir eiga eftir að koma frá veru Alla um borð Í Magnúsi Kristni GK, en báturinn var smíðaður árið 1963 og hét þá fyrst Hilmir II KE.  var hann 107 brl eikarbátur.  Var báturinn svo seldur til Súðavíkur og hét þar Valur ÍS, þaðan til Ólafsvíkur og hét þar Jökull SH, þaðan til Guðjóns Bragasonar og þaðan árið 1982 til Ólafsvíkur og hér þar Brimnes SH.  báturinn brann og sökk árið 1983, áhöfninn 5 manns bjargaðist.

Myndin er af Bjarna Gíslassyni SF og er nokkur tenging við þann bát og sögu Magnúsar Kristins GK og Sandgerði.  Þar sem báturinn heitir núna Valur ÍS og er gerður út frá Sandgerði á sæbjúguveiðar.

Skrifað 9.8.2009 kl. 20:35 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.8.2009

Kappsigling á loðnu árið 1977

Það má segja að mjög víða um land þá séu til myndaalbúm í hillu hjá hinum ýmsum sjómönnum, og margar þessara mynda koma aldrei fram á sjónarsviðið.  Því er það með nokkru stolti að ég hef komist í eitt þessara albúma því Aðalsteinn Sveinsson á Ísafirði hefur gefið mér leyfi fyrir að birta myndir frá honum hérna á síðunni.  Aðalsteinn er bróðir Reynis Sveinssonar sem er pabbi minn.  Alli eins og hann er kallaður stundaði sjómennsku í þónokkuð mörg ár og var iðulega með myndavélina meðferðis, lengst fór hann til veiða undir ströndum afríku.
Fyrsta myndin frá honum er tekin árið 1977 en þá var Alli á Alberti GK og er þarna á leið til Vestmanneyja og er Huginn VE þarna að fara frammúr honum. Mjög flott mynd og tilvalin sem fyrsta mynd.  
Færi ég Alla bestu þakkir fyrir að láta mér í tjé myndir og ég vona að lesendur síðunnar kunni að meta þetta framtak

Skrifað 6.8.2009 kl. 21:23 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Tenglar