Aflafréttir og fleira
Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Auglýsingapláss/styrkarlínur
auglýsingaplásstil
sölu,
og eða styrkarlínur.
Styrkja Síðuna
Styrktarreikningur síðunnarkennitala. 2008753709
bankabók.0142-05-001072
Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Kirkjuvegur 15Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-05-00107214.10.2009
Árið 1967.Bátarnir
Það voru alls 1134 bátar sem lönduðu einhverjum afla árið 1967 og sá sem voru þeir 10 neðstu eftirfarandi.
Tryggvi EA ekki skráð neitt númer var með 47 kíló
Dúa SI frá Siglufirði var með 59 kíló
Von EA 34 var með 61 kíló
Höfrungur SK 123 var með 105 kíló
Alda SI 49 var með 138 kíló
Nakkur SU 380 var með 160 kíló
Flugan NS var með 179 kíló
Rúna EA var með 198 kíló
Veiðibjallan ÞH frá Húsavík var með 225 kíló
og Báran SH frá Ólafsvík var með 249 kíló.
Ég bað lesendur um að velta því fyrir sér hvaða skip hafi landað mestum afla og voru 3 sem gisku á Sæbjörgu VE, 2 Helgu Guðmundsdóttir BA og einn Jón Eiríksson SF.
Allt fínar og réttmætar ágiskanir enda allt mikil aflaskip.
Í raun þá var staðan allt önnur.
Jón Þórðarsson BA var aflahæstur báta árið 1967 og segja má að hann hafi stolið þeim titli af Sæbjörgu VE þar sem hún var hæst allra báta alveg fram í Desember.
Í desember þá landaði Sæbjörg VE 26 tonnum í 5 róðrum á línu en Jón Þórðarsson BA var með 111 tonn í 16 róðrum einnig á línu.
Hérna fyrir neðan er tafla yfir 30 hæstu´bátanna árið 1967 og þar kemur einnig fram 3 hæstu mánuðirnir hjá hverju báti fyrir sig. Taflan ætti að skýra sig alveg sjálf
Eins og sést þegar taflan er skoður þá var besta veiðin í Apríl. og í Mars þá varð Helga Guðmundsdóttir BA langaflahæst með um 550 tonn.
Samt nokkur atriði sem vert er að nefna. Rán AK og Andvari RE 101 voru á handfæraveiðum í júní.
Helga Guðmundsdóttir BA var aflahæst á vertíðinni.
Glaður KE var á dragnót í júli.
| Sæti | Nafn | Heildarafli | 1.Mánuður | róðrar | 2.mánuður | Róðrar | 3.mánuður | Róðrar |
| 1 | Jón Þórðarsson BA 80 | 1450 | Mars..337 | 14 | Apr..278 | 14 | Feb..172 | 11 |
| 2 | Sæbjörg VE 56 | 1398 | Apríl..466 | 25 | Mars..228 | 19 | Maí..116 | 11 |
| 3 | Andvari KE 93(landaði í vestmann) | 1264 | Apríl..413 | 30 | Mars..235 | 17 | Júní..138 | 7 |
| 4 | Guðný ÍS 266 | 1180 | Apríl..307 | 24 | Jan..133 | 18 | Mars..121 | 13 |
| 5 | Sæunn GK 343(landaði í vestm) | 1128 | Apríl..422 | 30 | Mars..244 | 21 | Júní..98 | 6 |
| 6 | Helga Guðmundsdóttir BA 77 | 1124 | Mars..555 | 16 | Febr...269 | 15 | Apríl..204 | 13 |
| 7 | Sif ÍS 500 | 1087 | Apríl..296 | 23 | Maí..157 | 14 | Mars..131 | 12 |
| 8 | Steinunn SH 207 | 1086 | Mars..352 | 23 | Apríl..210 | 24 | Maí..131 | 12 |
| 9 | Hamar SH 224 | 1061,93 | Mars..244 | 21 | Apríl..206 | 20 | Jan..105 | 16 |
| 10 | Jón Jónsson SH 187 | 1061,53 | Mars..299 | 23 | Apríl..168 | 22 | Maí..165 | 14 |
| 11 | Sólfari AK 170 | 1036 | Apríl..428 | 9 | Mars..329 | 11 | Maí..135 | 5 |
| 12 | Víkingur II ÍS 170 | 1015 | Apríl..265 | 22 | Maí..126 | 13 | Jan..125 | 17 |
| 13 | Stígandi VE 776 | 1015 | Apríl..431 | 24 | Mars..134 | 18 | Sept..132 | 18 |
| 14 | Þrymur BA | 1011 | Mars..360 | 14 | Feb..171 | 11 | Maí..157 | 2 |
| 15 | Jón Eiríksson SF 100 | 977 | Apríl..299 | 11 | Mars..283 | 18 | Feb..175 | 8 |
| 16 | Geirfugl GK 66 | 968 | Apríl..411 | 21 | Mars..352 | 20 | Maí..198 | 14 |
| 17 | Eldborg GK 13 | 965 | Apríl..362 | 22 | Mars..285 | 19 | Maí..157 | 14 |
| 18 | Rán AK 304 | 959 | Júní..216 | 8 | Mars..134 | 15 | Apríl..100 | 14 |
| 19 | Glaður KE 67 | 949 | Apríl..174 | 18 | Mars..156 | 20 | Júilí..137 | 18 |
| 20 | Vísir KE 70 | 911 | Apríl..268 | 21 | Mars..166 | 23 | Júní..157 | 9 |
| 21 | Hópsnes GK 77 | 900 | Mars..240 | 22 | Apríl..218 | 22 | Maí..171 | 18 |
| 22 | Pétur Sigurðsson RE 331 (landar á Rifi) | 896 | Mars..404 | 22 | Apríl..240 | 19 | Febr..120 | 11 |
| 23 | Gissur Hvíti SF 55 | 894 | Apríl..308 | 15 | Mars..304 | 18 | Jan..82 | 12 |
| 24 | Hrafn Sveinbjarnarsson II GK 10 | 892 | Apríl..287 | 24 | Mars..201 | 21 | Okt..92 | 20 |
| 25 | Heiðrún II ÍS 12 | 890 | Apríl..281 | 23 | Mars..134 | 13 | Maí..98 | 9 |
| 26 | Kap II VE 4 | 887 | Apríl..339 | 23 | Mars..138 | 20 | Júní..85 | 9 |
| 27 | Ísleifur ÁR | 885 | Apríl..351 | 25 | Mars..225 | 20 | Feb..97 | 14 |
| 28 | Andvari RE 101 | 868 | Júní..173 | 8 | Mars..163 | 18 | Apríl..149 | 19 |
| 29 | Friðrik Sigurðsson ÁR 17 | 865 | Apríl..356 | 26 | Mars..183 | 26 | Feb..85 | 19 |
| 30 | Hvanney SF 51 | 862 | Apríl.396 | 22 | Mars.247 | 14 | Jan..49 | 10 |
Það er reyndar eitt að lokum. hvaða bátur er Stærstur og hvaða bátur er Minnstur af þessum sem eru á listanum. hægt að velta því fyrir sér.
Það er leyfilegt að nota uplýsingar úr tölfunni en verður að geta heimildar.
Og ekki er verra ef menn hafa eitthvað um þetta að segja.
14.10.2009
Aldan RE 327 árið 1968
Báturinn sem varð fyrir valinu hét Aldan RE 327.
Þrátt fyrir að báturinn væri RE og þar með gerður út frá Reykjavík þá var sú höfn ekki beint hans aðallöndunarhöfn heldur var það Sandgerði.
Aldan RE lagði nefnilega upp afla hjá Miðnesi HF.
árið 1968 þá hóf báturinn róðra í Febrúar og þá með línu. Landaði hann tæpum 12 tonnum eftir 3 róðra.
Í Mars sama ár þá var báturinn áfram á línu og fékk 31 tonn í 9 róðrum eða um 3.4 tonn í róðri.
Ágætlega fiskaðist í Apríl en þá var Aldan RE enn á línu og fór í 13 róðra og fékk 43 tonn eða um 3.3 tonn í róðri.
Fram til 11 maí sem er lokadagur Vetrarvertiðar þá kom Aldan RE með 12 tonn í 6 róðrum á línu.
Skipti svo yfir á handfærin og landaði tæpum 8 tonnum eftir 4 róðra.
Eins og um svo marga handfærabáta sem gerðu úr frá suðvesturhorni landsins og þar með talið Akranes þá var ufsaveiðin mjög mikil hjá svo til öllum Handfærabátunum og Aldan RE var þar enginn undantekning.
Í Júní þá fór báturinn ekki nema 2 róðra enn kom með 19.2 tonn sem gerir 9.6 tonn í róðri.
Þetta stutta yfirlit nær til Júliloka árið 1968 og þá var Aldan RE kominn vestur til Suðureyrar og gekk mjög vel þar . landaði í 7 skipti samtals 50 tonnum. eða 7.1 tonn í róðri.
var þá aflinn komin í um 174 tonn frá áramótunum 67/68.
Mynd Snorri Snorrason.
13.9.2009
Brjálað að gera í Grindavík í Mars árið 1968
Í mars árið 1968 þá var heldur betur líf í Grindavíkurhöfn því nokkuð vel virðist hafa viðrar til róða því bátar réru nokkuð stíft og afli var mjög góður. skulu tekin hérna 3 dæmi um fiskvinnsluhús sem ansi miklu var landað í.
Hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða var landað 1006 tonnum og þar voru atkvæðamestir Þórkatla II GK 197 sem fór í 23 róðra og var með 321 tonn sem allt fékk í net.
Þórkatla GK 97 sem var mun minni bátur enn Þórkatla II GK var með 220 tonn í 21 sjóferð allt í net.
Hjá Þorbirni HF var miklum afla landað eða alls 1616 tonnum og þar skipuðu Hrafnarnir sér allir á bekk í löndun.
Langatkvæðamestur Hrafnanna var Hrafn Sveinbjarnarsson II GK 11 sem gerði sér lítið fyrir og fór yfir 400 tonn í þessum mánuði eða 424 tonn í 28 róðrum.
Hrafn Sveinbjarnarsson GK 255 var með 354 tonn í 28 róðrum
og Hrafn Sveinbjarnarsson II GK 10 var með 262 tonn í 21 róðrum. reyndar voru 28 tonn af þeim afla fengin á línu í 6 róðrum.
Kanski hvað mesta athygli í þessum mánuði vakti hversu miklum afla var landað hjá fyrirtæki sem hét Arnarvík hf. Þar var landað hvorki meira né minna enn 1507 tonnum af einungis 4 bátum.
Bátarnir sem lönduðu þar voru engir aukvisar. heldur voru það Albert GK 31, Arnfirðingur II RE 212 , Geirfugl GK 66 og Staðarberg GK 350 sem var á trolli enn hinir voru á netum.
Geirfugl GK mokfiskaði og fékk alls 548 tonn í 28 róðrum sem gerir um 22 tonn í róðri. þar af fékk Geirfugl GK 281 tonn í einungis 12 róðrum sem gerir rúm 23 tonn í róðri.
Arnfirðingur II RE mokfiskaði líka og var með 464 tonn í 28 róðrum sem gerir um 18 tonn í róðri.
Albert GK var með 366 tonn í 24 róðrum.
Afla var landað á nokkrum stöðum til viðbótar í Grindavík þennan mánuð og má þar nefna Hraðfrystihús Grindavíkur sem tók á móti rúmum 600 tonnum, og voru þar Máni GK og Már GK aflahæstir báðir með um 200 tonn sitthvor báturinn.
Það er því óhætt að segja að brjálað hafi verið að gera í Grindavík á þessum ´tima og kanski einhverjir lesendur síðunnar hafi verið að vinna eða á sjó einmitt á þessum tíma sem þessi pistill á við.
9.9.2009
Mokveiði á ýsu
Er Byrjaður sð skrifa inn árið 1968 og þegar ég koma að Hornafirði þá vakti athygli mína hversu mikil ýsuafli kom á land þar. Enn alls var landað um 330 tonnum af ýsu í janúas mánuiði og veku rþað nokkra athygli.
Fékkst þessi ýsuafli í troll og á línu sem líka vekur nokkra athygli.
nokkrir bátar fengu mjög svo góðan ýsuafla og voru þeir eftirfarandi.
Ég hef ekki myndir af bátunum enn ef þeir eru "googlaðir" þá má finna myndir af þeim t.d á síðunni hjá Þorgeiri sem og á síðunni hans Hauks Snorrasonar.
Fyrst ber að nefna Eikarbátinn Gissur Hvíta SF 55 sem var 71 brl að stærð.
báturinn var á línu í janúr og fékk alls 123 tonn í 14 róðrum og af Því var ýsa 67 tonn.
Gissur Hvíti SF var næst aflahæsti báturinn í janúar það ár tæpum 10 tonnum á eftir þeim aflahæsta sem var Guðbjartur Kristján ÍS sem var á línu. Meðalafli Gissurs Hvíta SF var tæp 9 tonn sem verður að teljast nokkuð gott miðað við janúarmánuð
Hvanney SF var ekki langt frá Gissuri Hvíta SF. Hvanney SF var 65 brl eikarbátur og fékk alls 121 tonní 14 róðrum og af því var ýsa 59 tonn. báðir bátarnir réru á línu.
Ólafur Tryggvasson SF 60 var 150 brl stálbátur og réri hann á trolli og fór ekki nema 7 róðra en var með 83 tonn og var ýsa þar af 75 tonn. meðalafli bátsins tæp 12 tonn.
4 báturinn sem fiskaði vel af ýsu var Jón Eiríksson SF 100. Sá bátur varð 101 brl Eikarbátur og réri á trolli. Fór báturin einungis 4 róðra en var með 66 tonna afla og var það meginhluti ýsa því ýsuaflinn var 65 tonn. meðaflinn var 16.5 tonn.
15.4.2009
Mok steinbítsveiði árið 1967.
Það þykir tíðindum sæta við þennan afla að þessir bátar voru allir með meiri afla heldur enn t.d aflahæsti netabáturinn bæði frá Snæfellsnesi og vestfjörðum var með þennan mánuð. Enn þessir voru ekki þeir einu sem fengu góðan afla. því nefna má að Páll Jónsson ÁR ( skipaskrárnúmer 720) sem var 37 brl eikarbátur komst í 19 tonn í einni sjóferð.
Byrjum á Ísafirði. Þar gerði út í mörg bátur sem hét Guðný ÍS 266. Guðný ÍS var 75 brl stálbátur og er t.d systurbátur Marons GK sem er gerður út frá Keflavík í dag.
Guðný ÍS.
Aflinn hjá Guðný ÍS var 307 tonn í 24 sjóferðum eða 12,7 tonn í róðri. Ef þessi tala er reiknuð upp miðað við 6 sjóferðir á viku þá væri vikuafli Guðnýar ÍS 77 tonn. sem er vægast sagt mjög gott. Steinbítur af þessum 307 tonnum var 295 tonn. Guðný ÍS var næst aflahæsti línubátur landsins í apríl 1967.
Sá næsti í röðinni gerði út ekki langt frá Ísafirði. Raunar til tekið á Suðureyri. Þar var bátur sem hét Sif ÍS 500. Þessi bátur var frekar stór eða 91 brl eikarbátur og er stærsti báturinn af þessum 3 sem eru hérna í yfirlitinu.
Sif ÍS
Aflinn hjá Sif ÍS var 296 tonn í 23 sjóferðum eða 12,8 tonn í sjóferð. Reiknað upp í 6 sjóferðir eða vikuafla þá var vikuafli Sif ÍS 77 tonn.
Þriðj báturinn gerði út frá Patreksfirði og þar var hann innan um mikil og stór skip eins og t.d Helga Guðmundsdóttir BA. Jón Þórðarsson BA, Jörund III RE og Náttfara ÞH enn allir þessir bátar réru frá Patreksfirði á vertíð 1967. Þessi þriðji bátur á alla athygli skilið og meira til því hann var minnsti báturinn af þessum þremur sem hérna eru skoðaðir og varð jafnframt aflahæsti línubáturinn á landinu þennan mánuð. Báturinn sem hérna um ræðið hét Brimnes RE 333. Þessi bátur var ekki nema 59 brl að stærð.
Brimnes RE 333.
Aflinn hjá Brimnesi RE var alls 312,4 tonn í einungis 20 sjóferðum eða 15,6 tonn í róðri að meðaltali. Reiknað upp í 6 sjóferðir eða vikuafla þá var vikuafli Brimnes RE, 94 tonn.
Algert mok og ótrúlega góður afli á ekki stærri báti.
Það má bæta við að þessi litli bátur var ekki bara aflahæsti línubátur landsins heldur var hann aflahæstur allra báta á svæðinu frá Akranesi og norður um og austur alveg að Fáskrúðsfirði. Á Akranesi var Sólfari AK með 423 tonn og á Fáskrúðsfirði var Hoffell SU með 337 tonn báðir á netum.
Að lokum´verður að geta þess að myndirnar eru teknar úr bókinni íslensk skip, enn ég ætlaði fyrst að skrifa þennan pistil án mynda enn það er hálftómlegt að skrifa um báta og hafa ekki myndir með sérstakalega þegar ræða á um afla.
3.4.2009
Vestmannaeyjar í Mars árið 1967
Mars mánuður liðin árið 2009 og mokafli í svo til öll veiðarfæri nema erfið tíð fyrir smábátasjómenn víða um land.
Hvernig var í mars árið 1967. Ég var að klára að skrifa niður tölur frá Vestmannaeyjum og þær eru nokkuð forvitnilegar.
Heildarfjöldi báta sem landaði í Vestmannaeyjum í mars árið 1967 voru alls 74 talsins. í mars árið 2009 til samanburðar þá voru þeir í kringum 20 talsins og eru þá svo til öll stóru skipin talin með enn ekki smábátarnir. Einunigs 4 bátar stunduðu netaveiðar núna í mars ( Gandí VE, Brynjólfur VE, Glófaxi VE og Erlingur SF).
Merkilegt með með mars mánuð fyrir 42 árum síðan hversu margir bátanna stunduðu trollveiðar.
skulu nefndir nokkrir.
Freyja VE sem var 51 brl eikarbátur fékk 185 tonn í 10 sjóferðum og þar af 120 tonn í 6 sjóferðum á tímabilinu 15 mars til 31 mars.
Guðjón Sigurðsson VE 120 sem var 89 brl eikarbátur var með 255 tonn í 12 ferðum og þar af 140 tonn í einungis 5 sjóferðum seinni hluta mars.
Sindri VE 203 sem var 61 brl eikarbátur var með 208 tonn í 16 sjóferðum og þar af 130 tonn í 9 sjóferðum seinni hluta mars.
Hrauney VE 80 sem var 105 brl eikarbátur fékk 264 tonn í 16 sjóferðum og þar af 191 tonn í 10 sjóferðum seinni hluta mars. Hjá öllum þessum ofantöldu bátum þá var ufsi uppistaða afla í mars. og t.d hjá Hrauney VE þá af 191 tonnum þá var 113 tonn ufsi.
Eins og sést þá þessu þá eru þetta ekki stórir bátar og svo til langt því frá hægt að bera´þá saman við þá trollbáta sem núna róa frá Vestmannaeyjum t.d Vestmannaey VE .
og heildaraflinn í mars árið 1967 í eyjum var alls 7700 tonn af bolfiski.
24.1.2009
Hvaða Togari var hæstur í lok apríl árið 1982??
| Sæti | ........Nafn................................... | % |
| 11 | Snorri Sturlusson RE | 1,89 |
| 10 | Sléttbakur EA | 2,52 |
| 9 | Hólmanes SU | 2,52 |
| 8 | Sveinn Jónsson KE | 3,14 |
| 7 | Ólafur Jónsson GK | 3,14 |
| 6 | Kaldbakur EA | 3,14 |
| 5 | Arinbjörn RE | 5,03 |
| 4 | Páll Pálsson ÍS | 6,92 |
| 3 | Bessi ÍS | 6,92 |
| 2 | Breki VE | 19,5 |
| 1 | Guðbjörg ÍS | 30,19 |
| Sæti | ................Nafn.................. | Afli | Landanir | Meðalafli |
| 11 | Ólafur Jónsson GK | 1359,2 | 10 | 135,9 |
| 10 | Hólmanes SU | 1371,7 | 11 | 124,7 |
| 9 | Páll Pálsson ÍS | 1377,7 | 11 | 125,2 |
| 8 | Arinbjörn RE | 1380,7 | 9 | 153,4 |
| 7 | Guðbjörg ÍS | 1399 | 8 | 174,8 |
| 6 | Bessi ÍS | 1402 | 12 | 116,8 |
| 5 | Sléttbakur EA | 1420 | 7 | 202,8 |
| 4 | Snorri Sturlusson RE | 1484,3 | 6 | 247,3 |
| 3 | Kaldbakur EA | 1518 | 7 | 216,8 |
| 2 | Breki VE | 1542,6 | 10 | 154,2 |
| 1 | Sveinn Jónsson KE | 1582,6 | 11 | 143,8 |
Mynd ljósmyndari ókunnur. tekið af www.haraldarhús.is,
4.1.2009
Í lok Apríl árið 1982
21.12.2008
Mars árið 1981.
30.11.2008
Íslandsmet Smábáta
þetta er mjög stór spurning. Enn samkvæmt listnum´þá á Karólína ÞH metið sem var sett í maí í fyrra, enn það var uppá rúm 180 tonn í einum mánuði.
Enn er það Íslandsmet??. Ef þessi spurning er sett fram á annan hátt, þá má líta á að við séum að miða við t.d báta sem eru jafn stórir og t.d Ragnar SF og Karólína ÞH. Báðir bátarnir eru tæp 15 BT. Eigum við að miða íslandsmetið við báta svipaða og plastbátanna nýju, eða eigum við að miða þá við 11 til 15 BT eikarbátanna sem voru oft á tíðum á línu og netum á vertíð?. þeir bátar gengu reyndar mun minna heldur enn bátarnir hérna og voru tæknilega mun verr útbúnir. Hérna á árum áður þá voru vertíðarbátarnir oft í kringum þessa stærð. Og þeir fengu t.d fyrir 1950 oft um og yfir 200 til 300 tonn á mánuði.
Til þess að geta fullsvarað því hvað er núgildandi íslandsmet þá þarf að fara í ansi mikla rannsóknarvinnu. áður enn ég legst í það þá á Karólína ÞH metið. Enn þó get ég bætt við að báturinn Skógafoss RE sem var um 11 brl eikarbátur fékk í mars á vertíð 1964 tæp 240 tonn í 30 sjóferðum. Ég skrifaði frétt um þennan bát í fiskifréttum fyrir nokkrum síðan.
Ég er í söfnun núna og er að fá kassa fyrir árin 1967 og 1968 og þar gætu leynst einhverju gullmolar varðandi þessar stærð báta.
í umræðunni um smbátanna þá hafa komið fram bendingar um báta sem fiskuðu vel og ef að menn vita um einhverja báta í þessum stærðarflokki þá væri vel þegið að koma með það, og ég gæti komist að því hver í raun á metið í þessum stærð báta.
27.11.2008
Árið 1966
19.11.2008
smá af söfnun
29.10.2008
Furðuleg Bátsnöfn
.
Í gegnum tíðina þá hafa oft komið fram bátsnöfn sem er vægast sagt mjög furðuleg og skrýtin.
´Líklegast eitt þekksta dæmið um nöfn sem fengu mikla athygli er þegar Clinton GK og Monika GK hófu róðra frá sama staðnum. Enn þetta var eftir að persónur með sömu nöfnum fengu heimsathygli útaf smá ævintýri hjá þeim báðum. Núna í dag eru nokkuð kanski ekki beint furðuleg nöfn, enn nöfn engu að síður sem eru nokkuð öðruvísi.
Strax kemur upp í hugan Hróðgeir Hvíti NS. Snjólfur ÍS er nokkuð tormelt nafn, og það er eins og það sé smá húmor í nafninu Pési Halti ÍS.
Öll þessi nöfn hafa líklegast einhverja merkingu fyrir eigandann. Í aflaskýrslum sem ég er að faraí gegnum árið 1966 rakst ég á eitt nafn sem að mínu mati er eitt það allra furðulegasta sem ég hef séð. Þarna er bátur sem réri frá Raufarhöfn og hét því skemmtilega nafni Goggur Glænefur ÞH. ég þurfi að lesa mig nokkuð vel í gegnum bunkann til að vera viss um að þarna væri ekki stafsetningarvilla. Um þennan bát veit ég ekki neitt. í bókinni Íslensk skip er ekkert um bátinn. Ég efast um að sjálfur Emil Páll sem er manna fróðastur um sögu báta hérna á landinu viti eitthvað um þennan bát með þessu furðulega nafni.
Eru einhver önnur furðuleg bátsnöfn sem mönnum dettur í hug sem menn vita til ??
17.10.2008
Húsavík árið 1965
10.10.2008
Markús á Júpiter RE árið 1965.
Hérna neðst í þessum pistli mínum þá endaði ég á því að koma með þá spunringu um hvaða togari hefði verið þriðji aflahæsti togari landsins árið 1965.
Það voru nú ekki margar giskanir, enda kanski ekki margir notendur síðunnar sem þekkja eitthvað til togaranna árið 1965.
Enn það var t.d giskað á Mars RE og Þormóð Goða RE. Enn hvorugt er rétt, og reyndar var togarinn sem lenti í þriðja sætinu ekki einu sinni gerður út frá höfnum sunnanlands.
´Þá eru nú ekki margir togarastaðir eftir. þeir stærstu fyrir utan sunnanhafnirnar voru t.d Siglufjörður og Akureyri. Á Siglufirði var mikið aflaskip sem hét Hafliði SI. Enn á Akureyri þar voru líka mikil aflaskip og eitt af þeim varð einmitt þriðji aflahæsti togari landsins árið 1965. og var það togarinn Harðbakur EA. Þetta kemur kanski mönnum á óvart sérstaklega þar sem enginn giskaði á togara að norðan.
Ég Mun fjalla nánar um Harðbak EA síðar.
Hérna í stikunni til hliðar er flokkur sem heitir "Gömul Tíð". inní honum er nokkrir pistlar sem allir tengjast afla nokkuð langt aftur í tímann. Ég fjallaði um Sigurð ÍS og Maí GK í tveimur sitthvorum pistlunum og fór þá yfir aflann á þeim báðum mánuð fyrir mánuð.
Í gestabókinni hérna á síðunni þá skrifaði Óskar M Ólafsson, og bar fram eftirfarandi spurningu. " Hvað skyldi Markús á Júpiter haft í þessa þróttmiklu dalla árið 1965?".
Mjög flott orðuð spurning. og mér er það sjálfsagt verkefni að svara þessu.
Júpiter RE var einn af 6 togurum sem yfir 3000 tonn fóru árið 1965. og varð Júpiter RE reyndar 4 aflahæsti togarinn það ár.
Mánuð fyrir mánuð leit árið svona út hjá Júpiter RE.
Janúar. Enginn afli er skráður á togarann
Febrúar: Ein löndun 233 tonn,
Mars: Landaði einu sinni 165 tonni,
Apríl: Landaði í ´þýskalandi 203 tonni í einni ferð
Maí : Landaði einu sinni 262 tonni, fullfermi.
Júní: Mokveiði, landaði þrisvar alls 692 tonni eða um 231 tonn í löndun. Þessi mánuður hjá Júpiter RE var ansi góður, Togarinn var næstaflahæsti togarinn í þessum mánuði, Kaldbakur EA varð hæstur með yfir 700 tonn.
Júlí: Landaði tvisvar alls 431 tonni eða 215,5 tonn í löndun
Ágúst: Mjög góður mánuður, landaði tvisvar alls 518 tonnum eða 259 tonn í löndun.
September: Byrjaði að sigla, og allar landanir á haustinu árið 1965 voru silgt, mestmegnis til þýskalands. Landaði einu sinni alls 256 tonnum.
Október: Landaði einu sinni 153 tonnum.
Nóvember: Landaði einu sinni 92 tonnum.
Desember : landaði einu sinni 181 tonnum
Heildaraflinn hjá Júpiter RE var því 3183,6 tonn í einungis 15 sjóferðum eða sem svarar 212,2 tonn í löndun.
SVo bendi ég á að í flokknum "Gömul tíð" þá er hægt þar að bera saman þessa þrjá togara. mánuð fyrir mánuð, fyrir þá sem hafa gaman af því.
Eins og sést á þessu stutta yfirliti og það kemur jafnframt fram að ofan, þá varð Júpiter RE 4 aflahæsti togarinn árið 1965. og ætla að koma með smá spurningu í lokinn.
Maí GK varð hæstur, Sigurður ÍS annar, Júpiter RE fjórði, enn hvaða togari varð þriðji aflahæsti togarinn árið 1965?.

