Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

Færslur: 2009 Mars

13.03.2009 16:02

Drekkhlaðinn Reginn HF á vertíð!!

Mynd Guðni á Reginn HF.

Frá því ég byrjaði með þessa síðu þá hef ég verið að hvetja til þess að ná myndum af bátum fullfermdum.  ástæða þess er kanski sú að fyrr á árum t.d frá tímabilinu 1960 og alveg fram til 1990 þá þótti þetta það merkilegt að bátur kæmi með fullfermi að það rataði stundum á forsíðu dagblaðanna eins t.d Morgunblaðins.

Guðni á Reginn HF sendi mér þessa stórgóðu mynd af Reginn HF koma til hafnar á vertíð 2007 með 28 tonn innanborð og tvær trossur í bátnum.  Má geta þess að á þessari vertíð þá komst Reginn HF í fjögur skipti yfir 26 tonn í róðri og þar af þrisvar yfir 27 tonn í einni sjóferð. 

 Núna á vertíðinni 2009 þá eru þeir einungis 2 að róa á bátnum enn hafa samt komist í 17 tonn í 4 trossur  sem er algert mok og kanski lýsandi dæmi um þá mokveiði sem í netin er núna í mars.

Færi ég Guðna miklar þakkir fyrir þessa mynd og hvet aðra sjómenn til að senda mér mynd ef þeir eiga í fórum sínum af einhverju svipuðu og með Reginn HF.

12.03.2009 20:45

Sigurður Ólafsson SF


Myndir Hilmar Bragason

Hilmar Bragason sendi mér þessar myndir og sést á eftir myndinni að þorskurinn sem þeir eru að fá er ansi vænn og góður.  Sagði hann að þeir væru að verða búnir með þorskkvótann.  samkvæmt Fiskisfotu þá er hann búinn enn þeir flytja 89 tonn af þorski yfir á næsta fiskveiðiár.  Þeir eru búnir að veiða 346 tonn af þorski á þessu fiskveiðiári.  Spurning hvernig úthaldið verður hjá bátnum núna í mars þegar þorkskvótinn er búinn. 

12.03.2009 10:34

Mokveiði Rifsara SH


Mynd Guðmundur St Valdimarsson . Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Eins og sést á dragnótalistanum hérna að ofan þá hefur Rifsari SH heldur betur fiskað vel það sem af er mars. 

Stefán Guðmundsson Vélstjóri á bátnum sendi mér ansi góða lýsingu á einum róðrinum sem ég ætla að leyfa ykkur að lesa hérna.  Þessi var sendur til´min undir lok síðustu viku.

Sæll Gísli, vil segja þér að þessi síða hjá þér er hreint út sagt frábær.

Ég heiti Stefán I. Guðmundsson og er 1. vélstjóri á Rifsara SH sem er gerður út frá Rifi.
Við fengum heldur betur afla núna í vikunni eftir mikið óstuð í febrúar tókum sama magn núna í liðinni viku og allan febrúar, bara klikkun, mikið af þorski að vaða hér yfir allt úttroðin af síld og ýsan sem veiðist er full af loðnu.
Já loðnan er mætt í Breiðarfjörðinn og kætast sjómenn yfir því að hún fái að ganga óhindruð hér inn fjörðin verður gaman að sjá hvernig sumarið og haustið kemur út, fengum 23 tonn á fimmtudag og fengum svo á föstudag allhrikalegt hal, um 15:00 vorum við komnir með 7 tonn þegar við tökum það og eru um 13oo kg í og var sett stroffa til að taka það í einni hífingu en það vildi ekki betur til en að þegar pokinn var kominn upp að síðunni á bátnum þá kom ólag á bátinn og pokinn sogaðist frá bátnum og þegar hann valt til baka þá slengdist pokinn af svo miklu afli í síðunna á bátnum að koll línan slitnaði og við mistum aflann. 
 það var kastað aftur og voru þá 12 tonn í halinu ;) og aftur var kastað......og þvílíkur blámi þegar belgurinn reis úr hafinu og spýttist með þvílíkum látum að það var eins og eyja væri að rísa úr hafinu og  3 tímum seinna og eftir að hafa fyllt móttökuna 4 sinnum höfðum við fengið heil 18 tonn í kastinu af bolta þorski en hann var 80% af aflanum hitt ýsa, en á sama tíma í fyrra var álíka mikið mok en þá var ýsan 70% af aflanum, já við strákarnir á Rifsara vorum heldur betur sáttir en þreyttir þegar við skriðum í bólið klukkan 2 á föstudagsnóttina eftir rúmlega 100 tonna viku.
Kveðja Stefán Ingvar.

Færi ég Stefáni bestu þakkir fyrir þennan pistil og er þetta fyrsti pistilinn sem birtist á síðunni sem ekki er skrifaður að mér. 

12.03.2009 09:50

Helling af könnunum

Var að setja inn ansi margar kannanarnir eða 6 talsins.  og er spurt um svo til alla flokkana í mars.
spurt er um eftirfarandi flokka
hvaða Línubátur verður hæstur í mars?

Hvaða Smábátur undir 10 BT verður hæstur í mars?

Hvaða Smábátur yfir 10 BT verður hæstur í mars?

Hvaða netabátur yfir 50 Bt verður hæstur í mars?

Hvaða Netabátur undir 50 Bt verður hæstur í mars?

Hvaða Dragnótabátur verður hæstur í mars?

10.03.2009 13:23

Ágúst GK í Siglingu


Mynd Jón Páll Ásgeirsson . Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Þá Liggja sölutölur um Ágúst GK fyrir. 

Alls var Ágúst GK með 119,8 tonn og fékk fyrir það 27 milljónir eða 225,7 krónur í meðalverð.
Þorskur var uppistaða afla og fékkst 246 krónur fyrir 84,5 tonna afla.  Ýsan fór á 228 krónur og var magnið 14,8 tonn.  Keila fór á 99,7 krónur og afli 10,1 tonn.
Ef þessi sala er borin saman við Sturlu GK þá var Sturla GK með 112 tonn og 27,8 milljónir í aflaverðmæti og fékkst þá 248 krónur í meðalverð.  Þorskurinn fór á 269 krónur. 
engu að síður tæpar 55 milljónir í aflaverðmæti af þessum tveimur skipum er ansi gott.

Ágúst GK hét lengi vel áður Gullberg VE.  á loðnuleysisárunum þá stundaði Gullberg VE netaveiðar og trollveiðar.  Eina sölu hef ég á skrá hjá mér sem fram fór í Júní árið 1983.  þá silgdi Gullberg VE á Bretland og seldi alls 62,1 tonn fyrir 39151 pund eða 1,7 milljónir króna á þeim tíma.  Þorskur var þá 12,1 tonn af aflanum og meðalverð 27,07.  Þess má geta að þetta meðalverð var næst hæsta meðalverð af öllum sölum í júní árið 1983.  Einungis Valdimar Sveinsson VE fékk meira eða 27,57 krónur fyrir 42 tonna afla.  Hvernig þessi sala kemur út samanborðið við söluna í gær hef ég ekki þekkingu á til að reikna.

07.03.2009 20:23

Hrönn ÍS sekkur í Ísafjarðarhöfn 2 hluti


Myndir  Kristján R Guðmundsson Skipstjóri á Björg Hauks ÍS.  færi ég honum bestu þakkir fyrir.

 

Ég var varla fyrr búinn að setja inn myndirnar frá Aðalsteini Sveinssyni þegar mér bárust þessar myndir frá Kristjáni. 

Þess má svo geta varðandi Hrönn ÍS að ég er búinn að stofna albúm í myndaalbúmum um Hrönn ÍS og þar eru myndir frá Aðalsteini sem og Kristjáni, enn Kristján sendi mér 5 myndir og eru því 8 myndir í því albúmi núna.

07.03.2009 20:10

Hrönn ÍS sekkur í Ísafjarðarhöfn


Myndir:  Aðalsteinn Sveinsson á Ísafirði. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Þeir fara niður eikarbátarnir sem hafa legið lengi í höfnum landsins.  í fyrra voru þeir nokkrir og núna er sá fyrsti farin á árinu 2009, og það er Hrönn ÍS.,  sem lengst af hét Guðbjörg ÍS.  Hrönn ÍS var búinn að liggja við höfn í hátt í 10 ár enn engar landanir eru að finna um bátinn allavega aftur til ársins 2001. 
Aðalsteinn Sveinsson sendi mér þessar myndir sem teknar eru í dag

06.03.2009 13:20

Ein gömul frá Sandgerði

Það er er mér mikil ánægja með að setja hérna inn fyrstu myndina af vonandi fleirum sem koma úr safninu hans pabba, Reyni Sveinssyni.  útaf því þá er ég búinn að stofna sérstakan flokk í myndaalbúmum og heitir sá flokkur einfaldlega.  "Gamlar myndir frá Reyni Sveinssyni.".

Þarna er allnokkur floti.  sjá má Mumma GK,  Dagstjörnuna KE og utan á honum liggur Arney KE sem núna í dag heitir Ársæll ÁR. 

Í albúminu sem ég nefndi hérna að ofan þá má sjá þessa mynd og eina aðra og hægt er að stækka þannig að hægt er að sjá betur hvaða bátar eru þar. 

Við hina myndina sem er í flokknum þá vantar nöfn á dökku bátanna, enn vitað er um Erling KE, Guðmund Jónsson GK og Jón Gunnlaugs GK sem er þar fyrir aftan.

05.03.2009 15:35

Smábátar yfir 10 BT í febrúar

listi númer 13.

Lokalisti fyrir alla bátann og ansi góður endir fyrir suma bátann aog þá helst þá sem lönduði í Sandgeðri þann 28.  Dóri GK kom með 18.5 tonn í tveimur ferðum og komst mest í 12.2 tonn í einni sjóferð.
Von GK kom með 11 tonn í einni sjóferð og Hildur GK tæp 10 tonn í tveimur ferðum.  
 
Sæti Sæti Áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 1 Sirrý ÍS 128,290 21 8,4
2 2 Guðmundur Einarsson ÍS 124,803 22 8,2
3 3 Daðey GK 96,611 16 10,1
4 8 Tryggvi Eðvars SH 95,155 15 13,1
5 4 Ragnar SF 94,618 14 11,7
6 6 Benni SF 91,829 13 11,5
7 5 Dögg SF 89,442 15 10,7
8 7 Hópsnes GK 88,394 15 9,7
9 9 Narfi SU 86,800 14 10,1
10 15 Flugaldan ST 79,076 14 8,2
11 17 Þórkatla GK 78,675 16 8,5
12 13 Óli á Stað GK 77,803 14 9,1
13 12 Kvika SH 76,568 14 8,4
14 11 Bára SI 76,073 19 5,9
15 10 Háey II ÞH 74,239 11 11,1
16 16 Gísli Súrsson GK 73,867 15 7,1
17 14 Dóri GK 72,453 12 12,2
18 22 Guðmundur Sigurðsson SF 71,896 14 9,5
19 34 Auður Vésteins GK 71,51 15 7,9
20 18 Særif SH 69,104 16 7,9
21 20 Björn EA 66,628 13 8,1
22 33 Von GK 65,825 11 11,1
23 26 Kristján ÍS 65,626 14 7,1
24 28 Bjössi RE 65,311 12 9,3
25 31 Hildur GK 63,890 15 7,1
26 19 Dúddi Gísla GK 63,079 15 7,6
27 29 Sæunn Sæmundsdóttir ÁR 62,864 13 10,1
28 27 Bíldsey Sh 62,391 15 5,2
29 21 Hlökk ST 62,050 12 6,8
30 23 Stjáni Ebba ÍS 62,009 11 10,4

05.03.2009 11:16

netabátar undir 50 BT í febrúar

Mynd Pétur Þór Lárusson skipverji á Keili II AK. 

Listi númer 10


Lokalistinn fyrir febrúar.  Sæþór EA endaði í öðru sætinu. 
Bátarnir frá Sandgerði fengu allir góðan afla þann 28.  Svala Dís KE kom eð 11 tonn og Maggi Jóns KE 10 tonn.  Sunna Líf KE var með tæp 10 tonn eftir daginn.
Fengur ÞH frá Grenivík endaði með 5.5 tonn í einni sjóferð.
 
Sæti Sæti áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 1 Bárður SH 183,642 26 22,1
2 4 Sæþór EA 99,36 23 10,2
3 2 Reginn HF 94,08 9 17,3
4 5 Keilir II AK 85,38 21 7,9
5 3 Ísak AK 85,17 20 9,1
6 11 Svala Dís KE 77,42 19 11,1
7 9 Arnar SH 69,33 22 5,1
8 6 Sæbjörg EA 67,65 17 5,7
9 12 Sjöfn EA 67,17 18 7,9
10 10 Katrín SH 5 66,26 20 6,1
11 7 Eiður ÓF 66 22 6,6
12 22 Maggi Jóns KE 57,39 16 10,3
13 8 Askur GK 56,74 13 9,8
14 13 Birta SH 56,58 17 11,1
15 15 Hraunsvík GK 51,5 9 7,4
16 14 Sandvíkingur ÁR 50,97 12 9,1
17 16 Níels Jónsson EA 47,02 23 4,1
18 21 Reynir Þór SH 45,39 16 3,8
19 20 Fengur ÞH 43,19 20 5,5
20 17 Hafnartindur SH 43,15 17 3,9
21 18 Sproti SH 42,07 18 6,6
22 24 Máni ÁR 41,71 10 9,1
23 19 Nunni EA 41,42 16 5,3
24 29 Sunna líf KE 37,02 10 9,6
25 23 Árni í Teigi GK 32,78 12 4,9

04.03.2009 19:19

Dragnótabátar í Febrúar

Listi númer 10.

svo til lokalisti.  reyndar er furðulega lítill skráður afli á Brimnes BA síðuastu daganna í febrúar. 
Jón á Hofi ÁR var með 55 tonn eftir útilegur og nær að fara í þriðja sætið.

 
Sæti Sæti áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 1 Sæberg HF 234,94 26 20,4
2 2 Arnar ÁR 209,38 5 71,6
3 11 Jón Á Hofi ÁR 175,56 4 73,6
4 3 Vestri BA 164,79 12 22,6
5 4 Hásteinn ÁR 157,83 6 38,5
6 5 Gunnar Bjarnarsson SH 141,62 19 16,7
7 6 Guðmundur Jensson SH 133,84 18 13,6
8 7 Margrét HF 133,3 13 27,1
9 8 Örn KE 127,93 16 22,9
10 9 Steinunn SH 121,95 19 10,5
11 10 Fróði II ÁR 121,39 3 50,1
12 12 Matthías SH 120,24 15 18,5
13 13 Sigurfari GK 118,39 18 31,8
14 14 Esjar SH 114,94 17 11,9
15 15 Sólborg RE 113,36 8 24,2
16 16 Siggi Bjarna GK 112,13 17 10,5
17 17 Jóhanna ÁR 105,91 10 26,5
18 18 Rifsari SH 104,65 19 15,4
19 19 Farsæll GK 99,73 15 20,5
20 20 Sveinbjörn Jakopsson SH 91,19 18 8,5
21 21 Benni Sæm GK 85,55 14 17,4
22 22 Njáll RE 81,4 13 13,6
23 27 Aðalbjörg RE 76,64 16 9,3
24 23 Valgerður BA 76,32 18 10,4
25 24 Portland VE 72,93 6 25,1

04.03.2009 18:38

Smábátar undir 10 BT í febrúar

Listi númer 8.
Lokalistnn og Einar Hálfdáns ÍS hæstur annan mánurðinn i röð.  Reyndar þá voru mjög fáir bátar sem réru yfir 10 sjóferðir í febrúar.  Rán SH fór í næst flesta róðranna eða 13 og Lilja BA kom þar á eftir með 12 sjóferðir.
Glaður SH náði að læða sér í annað sætið enn báturin komst uppí 7.2 tonn í einni  sjóferð.  varhann núna með 11 tonní tveimur ferðum.
Mjög margir bátanna komu með stóra róðra í lok febrúar og voru þeir t.d
Ásdís ÍS 6,5 tonn í einni sjóferð
Sverrir SH 6 tonn
Toni EA 4,6 tonn
Ingi Jó EA 4,8 tonn
Björg Hauks ÍS sem rær frá Drangsnesi 5 tonn
Sleipnir ÁR 5,6 tonn
Huld EA 5,4 tonn.  allir þessar landaðir voru eftir eina sjóferð
Sæti Sæti Áður Column32 Afli Róðrar Mest
1 1 Einar Hálfdáns ÍS   55,172 16 6,9
2 3 Glaður SH  45,218 11 7,2
3 2 Snjólfur ÍS  39,868 10 5,9
4 4 Ásdís ÍS  31,1 11 6,5
5 12 Blossi ÍS   29,294 7 5,8
6 8 Sverrir SH  27,738 8 6,1
7 7 Toni EA    27,699 8 6,3
8 6 Mangi á Búðum SH  26,962 10 4,1
9 11 Ingi Jó EA  25,73 8 6,2
10 10 Bensi ÍS 25,371 9 5,1
11 5 Kári SH  23,838 6 5,5
12 13 Rán SH  23,01 13 2,5
13 14 Björg Hauks ÍS  23,009 8 5,1
14 9 Diddi GK  21,6 7 4,2
15 17 Njörður BA  18,639 4 7,1
16 18 Garðar ÍS  18,502 4 5,2
17 22 Berti G ÍS  17,394 5 4,5
18 15 Hólmi NS  17,069 5 6,2
19 21 Hrönn ÍS 16,564 5 4,4
20 25 Fríða EA  15,5 11 2,6
21 23 Blíða VE 15,44 8 2,8
22 16 Petra SK 15,23 4 5,1
23 30 Eydís EA    14,812 4 5,8
24 39 Margrét ÍS  14,598 5 3,4
25 38 Sleipnir ÁR  14,501 5 5,6
26 32 Elva Björg SI  14,343 8 2,2
27 19 Sævar SF 14,055 3 4,9
28 31 Sæfari SK  13,902 6 4,3
29 40 Huld EA  13,864 5 5,4
30 20 Nonni ÞH  13,804 8 2,2

04.03.2009 08:53

línubátar í febrúar

Listi númer 7

Lokalistinn hjá línubátuum og heildarvigtin úr Sturlu GK var 134 tonn óslægt. 
ótgrúlega góður febrúar mánuður og 3 bátar komast yfir 400 tonnin sem er met í ekki lengri mánuði. 
10 bátar komast yfir 300 tonnin.  Kristinn SH endaði í tæpum 150 tonnum og Hafdís GK komst í 11 tonn í einni sjóferð.  Gulltoppur GK er kominná dragnót.
 
Sæti Sæti áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 1 Tjaldur SH 457,94 6 89,1
2 5 Kristín ÞH 431,78 5 95,3
3 4 Páll Jónsson GK 419,48 5 103,9
4 3 Sturla GK 377,06 4 133,9
5 2 Fjölnir SU 373,01 7 78,5
6 7 Jóhanna Gísladóttir ÍS 372,01 5 95,1
7 6 Núpur BA 322,6 6 81,6
8 12 Sighvatur GK 313,13 4 94,5
9 8 Valdimar GK 303,04 4 83,5
10 9 Tómas Þorvaldsson GK 300,83 4 82,1
11 15 Rifsnes SH 284,83 6 55,4
12 14 Örvar SH 281,68 6 74,1
13 16 Arnarberg ÁR 281,5 6 52,6
14 10 Ágúst GK 279,59 4 81,6
15 17 Þorlákur ÍS 275,69 6 52,6
16 11 Kristrún II RE 245,33 5 75,4
17 13 Kópur BA 235,97 4 57,8
18 18 Grundfirðingur SH 219,26 3 57,5
19 20 Gullhólmi SH 199,42 4 56,1
20 19 Saxhamar SH 169,41 5 37,6
21 21 Kristinn SH 145,57 18 10,9
22 22 Hafdís GK 74,34 15 11,5
23 25 Hafrún HU 36,46 7 9,7
24 23 Ásta GK 28,71 6 6,6
25 24 Gulltoppur GK 27,82 5 8,5
26 26 Valur ÍS 1,87 1 1,8

03.03.2009 21:03

Hafið mynd nr.3

Þriðja myndin í þemanu mínu kemur hérna og þessi er í nokkru uppáhaldi hjá mér.  Hún er tekin á Hafnarbergi eða Hafnabergi.  ( það eru tvö berg og annað við Þorlákshöfn og hitt rétt við Hafnir.  eini munurinn á þeim er að annað er með "R" enn hitt ekki). 

Þessi mynd er núna ásamt 12 öðrum myndum í Dýraríkinu við IKEA þar sem er ljósmyndakeppni um gæludýrin. 

Ef að einhverjir eru í vafa þá er Frosti alveg á brúninni þarna. 

03.03.2009 20:37

Sturla GK í siglingu

Mynd Ragnar Pálsson .  Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Salan hjá Sturlu GK hefur vakið ansi mikla ahygli og sést best á að flest allir netmiðlar á landinu hafa fjallað um hana sem og í Grimsby þar sem Sturla GK silgdi.  Þar kemur jafnfram fram að þar hefði ekki íslenskt skip silgt þangað í 9 ár.

Enn hvenær skyldi Sturla GK hafa silgt síðast út?

Áður enn báturinn fékk nafnið Sturla GK þá  hafði hann verið svo til frá upphafi verið með nafnið Guðmundur RE og VE.  Helsta veiðarfærið Guðmundar var nótaveiðar nema þegar loðnuveiðar voru bannaðar uppúr 1982.  Þá stundaði báturinn netaveiðar og fékk t.d í mars mánuði árið 1983 318 tonn í 12 sjóferðum landaði í Vestmannaeyjum.  Engar sölur finn ég um Guðmund VE í mínum gögnum um árið 1982 til 1984. 
Aftur á móti er annað merkilegt við söluna hjá Sturlu GK og það er að þetta er fyrsta skiptið í mjög svo mörg ár að línubátur sigli með afla út.  Hingað til þá hafa troll og togarar verið þeir sem hafa silgt með afla út.  Helst voru það bátar frá Vestfjörðum sem notuðu línu sem sitt veiðarfæri þegar þeir silgdu með afla út, nefni t.d Jón Þórðarsson BA, Ólaf Friðbertsson ÍS og Þrym BA sem dæmi um línubáta sem silgdu.

Þannig að í raun má segja að þessi sala Sturlu GK sé stórmerkileg fyrir marga hluta sakir, fyrsta salan í grimsby í 9 ár, fyrsta salan hjá línubáti í mörg ár og svo báturinn sjálfur.

Salan gekk allavega þannig fyrir sig.

Sturla GK seldi alls 112.3 tonn og fékk 248 krónur í meðalverð. heildaraflaverðmæti var 27.8 milljónir.  Sundurliðunin var eftirfarandi:
Þorskur tæp 82 tonn fyrir 22 milljónir eða 269 krónur á kíló
Ýsa 10.2 tonn fyrir 2,6 milljónir eða 257 krónur á kíló
Lúða 67 kíló og 989 krónur í meðalverð
Keila tæp 8 tonn fyrir 780 þúsund og 97 krónur í meðalverð
Langa 7.2 tonn fyrir 1.3 milljónir eða 187 krónur í meðalverð
Karfi tæp 2 tonn fyrir 327 þúsund krónur eða 166 krónur í meðalverð
Blandað tæp 3 tonn og 218 krónur í meðalverð


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1116
Gestir í dag: 299
Flettingar í gær: 1632
Gestir í gær: 378
Samtals flettingar: 2617567
Samtals gestir: 582479
Tölur uppfærðar: 22.5.2012 18:32:10

Tenglar