Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 190
Gestir í dag: 74
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370834
Samtals gestir: 530337
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:07:45

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

04.09.2010 22:44

Aflaverðmæti Trollbáta árið 2009.

Margir netmiðlar landsins fjalla mikið um það með stórum stöfum að Steinunn SF hafi verið með 721 milljón króna aflaverðmæti.  Ansi góður árangur enn kemur svo sem ekki á óvart.  Steinunn SF er með ansi góðan kvóta og hefur á að skipa ansi duglegri áhöfn. 
    Ég er búinn að setja saman lista hérna sem kanski er nokkuð öðruvísi enn aðrir listar.  Félagar mínir á Fiskifréttum munu birta hjá sér tölfur yfir aflaverðmæti fiskiskipaflotans enn ég miða þessa tölfu við meðalverð.  Þá lítur dæmið nokkuð öðruvísi út.

Steinunn SF var jú með mesta aflaverðmætið enn hún var einnig aflahæst.  Helga RE var aftur á móti með mesta meðalverðið og kanski er ástæðan sú að báturinn kom til landsins í fyrra og byrjaði frekar seint á veiðum.  
    Steinunn SF aftur á móti er í 13 sætinu og er ástæðan sú að langmestur hluti aflans er tekin til vinnslu á Hornafirði.  bátarnir fyrir ofan Steinunni SF á listanum eru að langmestu leyti togskip sem landa í gáma. 

Sóley SH er í öðru sætinu og kemur ekki á óvart enn undanfarin ár þá hefur Sóley SH verið með mesta meðalverðið og hafa ber í huga að Sóley SH er mun aflminni heldur enn svo til öll hin skipin sem og burðarminni.  fullfermi hjá Sóley SH er um 45 til 50 tonn á meðan hin er að komast með allt uppí 90 tonn og yfir í einni löndun.

 
Sæti Nafn Afli Aflaverðmæti Meðalverð
1 Helga RE 489 159,4 326,1
2 Sóley SH 1694 440,9 260,3
3 Stígandi VE 2025 474,7 234,4
4 Vörður EA 2095 450,4 215,1
5 Smáey VE 2857 595,5 208,5
6 Oddgeir EA 1893 393,5 207,9
7 Frár VE 2108 432,3 205,1
8 Vestmannaey VE 3418 696,1 203,4
9 Dala Rafn Ve 2392 480,3 200,8
10 Bergey VE 3365 654,1 194,4
11 Þorvarður Lárusson SH 3124 600,5 192,2
12 Farsæll SH 1551 292,2 188,4
13 Steinunn SF 3930 720,7 183,4
14 Drangavík VE 3253 569,4 175,1
15 Þinganes SF 1680 255,2 151,9
16 Helgi SH 2763 417,8 151,2
17 Hringur SH 3110 426,4 137,1
18 Óskar RE 461 37,8 82,9

Tenglar