Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 221
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370865
Samtals gestir: 530348
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:40:23

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

01.09.2010 09:27

Tveir 55 ára gamlir bátar báðir í öðru sæti.


    Það eru nokkrir bátar hérna við land sem eru komnir í og yfir 50 ára aldurinn sem ennþá eru gerðir út.  Inná dragnótalistanum og netalistanum má finna tvo þannig báta sem eiga nokkuð sameiginlegt.  Báðir þessir bátar eru smíðaðir í Hollandi og það sama árið 1955.  Þeir eiga því 55 ára afmæli í ár.
    Grímsey ST er fyrri báturinn enn hann stundaði dragnótaveiðar í ágúst og gekk vægast sagt þrusuvel.  hann náði að vinna sig upp listann og alveg á toppinn eða þangað til Geir ÞH kom og stakk af þar.  Þrátt fyrir það þá gekk Grímsey ST vel og endaði í öðru sætinu eftir að hafa landað 45 tonn í 7 róðrum.  mest komst báturinn í 12,3 tonn í einum róðri. Grímsey ST var gerður út frá Drangsnesi.  Endaði Grímsey ´ST í 128 tonnum í 17 róðrum eða 7,5 tonn í róðri sem er feiknargóður meðalafli.


Mynd Alfons Finnson.

Hinn báturinn sem einnig er smíðaður í Hollandi og árið 1955 er Maron GK og er gerður út af Grímsnesi hf.  Maron GK er systurbátur Grímsey ST nema að búið er að lengja Maron GK og er hann um 4 metrum lengri enn Grímsey ST.  Maron GK stundaði netaveiðar og gekk vægast sagt ansi vel.  báturinn gerði út frá Njarðvík og stundaði þorskveiðar.  Miðað við að það sé ágúst mánuður þá má segja að Maron GK hafi mokfiskað. t.d komst báturinn í 47,7 tonn í 6 róðrum vikuna 9 til 15 ágúst.  og mest komst Maron GK í um 11 tonn í einum róðri.  Maron GK endaði í 108 tonnum í 18 róðrum eða 6 tonn í róðri.

Mynd Rúrik Hreinsson

    Bæði Grímsey ST og Maron GK enduðu í öðru sætinu í sínum flokki og að auki þá voru þeir einu bátarnir sem yfir 100 tonnin komust fyrir utan toppbátanna.  Samtals var afli þessara tveggja 55 ára gamla báta tæp 240 tonn.

Tenglar