Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

26.08.2010 00:42

Merkileg humarvertíð

Það hefur ekki farið frammhjá neinum sem hefur fylgst með humarlistanum hérna á síðunni að það er æði jafnt á milli efstu skipanna og það lítur út fyrir að það muni ekki ráðast fyrr enn í vertíðarlok hvaða bátur verður aflahæsti humarbáturinn.  Í fyrra þá var Fróði II ÁR hæstur og vel það.
    Enn það er nú samt annað og kanski ennþá merkilegra við þessa humarvertíð núna sem kanski margir hafa ekki tekið eftir.  Málið er nefnilega að núna eru komnir á veiðar bátar sem hafa ekki verið á humri í mörg ár og jafnvel hafa aldrei verið á humri.
    Þessir bátar eru Arnar ÁR sem er gerður út af Auðbjörgu í Þorlákshöfn.  Arnar ÁR hefur síðustu 10 ár einungis verið gerður út á dragnót.  Og þar á undan var báturin gerður líka út á dragnót og net á vertíðum.  Gróft á litið þá má segja að það séu í það minnsta 10 ár og jafnvel fleiri ár sem hafa liðið frá því að Arnar ÁR var síðast á humri.  Reyndar er Arnar ÁR ekki kominn inná nýjsta humarlistann enn hann er kominn með 23,6 tonn af humri og 45 tonn af fiski í 8 róðrum.

Arnar ÁR . Mynd Jón Páll Ásgeirsson.

Hinir tveir bátarnir eru í raun systurskip. því uppruna voru þau smíðuð fyrir útgerðaraðila á Höfn í Hornafirði og komuð þangað árið 1991.  Annar þeirra hét Æskan SF og hinn Þinganes SF.  Þinganes SF er einmitt komið á humarveiðar núna í sumar og síðustu 10 ár þá hefuru Þinganesið SF einungis verið á trolli.  Báturinn var reyndar á humri fyrstu árin sem hann var gerður út frá Höfn. allavega 10 ár  þar sem að báturinn hefur engar humarveiðar stundað.

Þinganes SF.  Mynd Sverrir Alla.

Þriðji báturinn sem er systurskip Þinganes SF, heitir í dag Drangavík VE.  Drangavíkin VE fór í lengingu í fyrra og er þessvega nokkuð frábrugðin í útliti miðað við Þinganes SF.  Þegar báturinn hét Æskan SF þá stundaði hann humarveiðar í byrjun , enn eftir að báturinn var seldur til Vestmannaeyja þá hefur hann aldrei stundað humarveiðar.  Drangavík VE hefur einungis stundað trollveiðar þangað til núna í sumar

Drangavík VE . Mynd Alfons Finnson.

Enn hver er ástæðan þess að þessir 3 bátar sem jafnvel hafa aldrei stundað humarveiðar eru komnir á humarinn?
Jú það er hugsanlega tvær ástæður fyrir því .  sú fyrri er að nokkur aflatregða hefur verið á humarveiðum miðað við t.d árið 2009. og hin ástæðan sem er þó samtvinnuð þeirri fyrri er sú að aflareglu var breytt á þann veg að minna má flytja milli ára heldur enn hefur verið og það gerir það að verkum að útgerðir sem eiga humarkvóta eiga það á hættu að brenna inni með kvóta og því senda þau fleiri skip til humarveiða eins og þessir 3 bátar sýna.

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1116
Gestir í dag: 299
Flettingar í gær: 1632
Gestir í gær: 378
Samtals flettingar: 2617567
Samtals gestir: 582479
Tölur uppfærðar: 22.5.2012 18:32:10

Tenglar