Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 2049
Gestir í dag: 441
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364199
Samtals gestir: 529061
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 22:00:24

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

20.08.2010 13:09

Nýjasti Sæbjúgubáturinn

    Það er orðin ansi fjölbreytt flóra veiðarfæra sem bátarnir hérna við land eru farnir að reyna sér á.
    Margsinnins hefur verið minnst á makrílæðið og hversu mörg skip hafa reynt fyrir sér á þeim veiðiskap
    Hitt kanksi litla æðið er sæbjúguveiðarnar.  framan af þá var Hannes Andrésson SH sá eini sem stundaði þær veiðar.  þangað til fyrir nokkrum árum að Hans Jakop GK ( áður Dalaröst ÞH) fór að stunda þær og svo Drífa SH ´báðir frá Sandgerði
    Sæfari ÁR tók sig svo til eftir að hafa stundað þær frá Sandgerði að hann fór austur og var þar með fyrstur bátanna til að stunda sæbjúguveiðar þar.  
    Allir þessir bátar sem ég minnist á að ofan eru nokkuð stórir eða um og yfir 70 brl að stærð
    Nú hefur einn bátur bæst við þennan sæbjúguhóp og sá bátur er nú nokkuð mikið frábrugðin þeim þvi þessi bátur er ekki nema um 30 brl og heitir sá bátur Sandvíkingur ÁR.
    Reyndar er hann svo til systurbátur Hannesar Andréssonar SH því báðir bátarnir eru smíðaðir á seyðisfirði.  
    Sandvíkingur ÁR er að róa frá Stöðvarfirði og er þar  með fyrsti báturinn sem rær þaðan á sæbjúgu.  Sæfari ÁR sem var að róa fyrir austan hafði að mestu verið að landa á Eskifirði og Neskaupstað.  
    þegar þessi orð er skrifuð þá er Sandvíkingur ÁR búinn að fara í 4 róðra og hefur mest komist í um 7 tonn sem verður að teljast nokkuð gott miðað við stærð bátsins.

Sandvíkingur ÁR .  Mynd Raggi P.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Tenglar