Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
19.08.2010 22:36
53 tonna hal!!
Það hefur væntanlega ekki farið frammhjá neinum makrílæðið sem allir tóku þátt í og eru að taka þátt í.

Nokkur ísfisksskip fóru á makrílveiðar og margir ísfiskstogarar.
Hérna neðar á síðunni eru myndir af Ljósafellinu SU sem kom með 217 tonn af makríl í einni ferð
HB togarnir Sturlaugur H Böðvarsson AK, Ásbjörn RE og Ottó N Þorláksson RE fór allir á makrílinn.
Ottó N Þorláksson RE var ekki nema 4 daga á veiðum og kom með þá 235 tonn að landi og fékk í einu holinu 53 tonn.
Richard sem er á Ottó sendi mér mynd af þessu 53 tonna holi sem þeir fengu
Mynd Richard á Ottó N Þorlákssyni RE
Skrifað af Gísli.R
