Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 938
Gestir í dag: 209
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2371582
Samtals gestir: 530472
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 08:34:54

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

23.07.2010 19:08

Makrílæði hjá togskipum og Ljósafell SU með metafla.

    Reglulega grípur um landan æði af ýmsum toga og nýjsta er Makríllinn.  þessi fiskur sem sumir kalla ónýtjung og vilja láta veiða hann helst sem mest því hann étur ansi mikið af seiðum.  hefur látið sjá sig svo til allstaðar.      
    Trollbátarnir okkar eða litlu togarnir hafa verið á tvílembingsveiðum og hafa Vestamanney VE og Bergey VE verið saman.  Vestmanney VE hefur landað 71 tonni og Bergey VE 66 tonn eða 137 tonn samanlagt.
    Hringur SH og Helgi SH hafa svo verið saman og hefuru Hringur SH landað 78 tonni og Helgi SH 31 tonni eða 108 tonn samanlagt.  athygli vekur að Síld er um 10 tonn hjá Hringi SH.

200 tonna múrinn rofin !
    
    
Í aflatölugrúsk mitt þá er ég iðulega að rekast á all svakalega háar tölur hjá ísfiskstogurnum okkar og einn af þeim togurunum er Ljósafell SU.  hann hefur komist yfir 200 tonn af bolfiski í einni löndun og núna þá gerðu þeir sér lítið fyrir með hjálp frá Hoffelli SU að þeir fór út á makrílinn og fengu kjaftfult skip eða 219 tonn og af því var síld 22 tonn restin makrílin.
    á facebook síðu Ljósfells SU segir að það var vacúm dælt úr skipinu og er það í fyrsta skiptið sem það er gert.
    
á leið til hafnar í Fáskrúðsfirði og eins og sést er skipið vel sigið.

Falleg sjón að sjá.  ekki oft sem ísfiskstogari sést drekkhlaðinn.

Allt pláss nýtt og vel það. 

Lestinn pökkuð.
Myndir af FAcebook síðu Ljósafells og Hoffels SU.  færi ég þeim bestu þakkir fyrir.

Tenglar