Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 195
Gestir í dag: 77
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370839
Samtals gestir: 530340
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:01:50
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
16.05.2010 01:43
Apríl árið 1970.7.Hluti
Síðsti hlutinn þar sem ég fjalla um þennan risamánuð sem apríl árið 1970 var. Eins og áður hefur komið fram þá komust alls 99 bátar yfir 400 tonnin þennan mánuð og núna tek ég fyrir 4 aflahæstu bátanna þann mánuð. Reyndar geri ég það aðeins öðruvísi núna. ég byrja á 4 sætinu, svo í 2 sætið svo 1 sætið og enda á 3 sætinu.
Báturinn sem varð í 4 sætinu gerði út frá Vestmananeyjum og hét Huginn II VE.

Mynd úr safni Tryggva Sigurðsonar
Huginn II VE var aflahæsti Vestmannaeyjabátanna og hafði í febrúar og mars stundað loðnuveiðar. Fór svo á netin í april og vægast sagt rótfiskaði t.d þá fékk báturinn í 9 róðrum alls 299 tonn eða 33 tonn í róðri. Heildarafli bátsins var 639,5 tonn í 23 róðrum það gerir 27,8 tonn í róðri, og reiknað uppí 6 róðra sem var algengur róðrafjöldi þá gerðir það 166,8 tonn sem verður að teljast vera feiknagóður afli.
Næsti bátur var mikið aflaskip og þegar ég byrjaði að fjalla um þennan metmánuð þá kom ég með þá spurningu um hvaða bátar gætu hugsanlega verið þarna á toppnum. Orri hann giskaði á Geirfugl GK. sem er rétt.

Mynd Snorri Snorrason.
Geirfugl GK var eins og að ofan kemur mjög mikið aflaskip og náði æði oft að verða hæstur yfir landið. Og einmitt þessa vertíð árið 1970 þá náði Geirfugl GK að verða hæstur með 1704 tonn og bætti þar með aflamet Sæbjargar VE sem hafði verið sett árið 1969. Geirfugl GK réri á netum alla vertíðina og fékk t.d í febrúar 459 tonn í 20 róðrum sem gerir 22,9 tonn í róðri eða 138 tonna vikuafla miðað við 6 róðra.
Þennan umtalaða risaaprílmánuð þá fiskaði Geirfugl GK hvorki meira né minna enn 718 tonn í 26 róðrum. þetta gerir 27,6 tonn í róðri og miðað við 6 róðra þá gerir það 165,6 tonna vikuafla.
Þrátt fyrir þennan mokafla þá varð Geirfugl GK annar hæstur þennan mánuð.
Næsti bátur var nefnilega aflahæstur og það ekkert smá. Þarna er verið að tala um Albert GK.

Eldborg GK sem síðan varð Albert GK. Mynd Snorri Snorrasson.
Ég fann enga mynd af Alberti GK eða litla Alberti GK eins og hann var oft kallaður.
Albert GK var aflahæstur bátanna í apríl og aflinn var vægast sagt rosalegur. að ná yfir 600 tonna afla telst vera feiknargott. að ná yfir 700 tonna afla í netum á mánuði myndi teljast vera ótrúlega gott. enn að ná yfir 800 tonn eða þá 850 tonn á mánuði .??. slíkt myndi kanski kallast ótrúlegt.
Enn það var engu að síður rauninn með Albert GK því aflinn hjá bátnum var hvorki meira né minna enn 868,8 tonn (svona stóra tölu verður maður að hafa feitletraða). Og þennan afla fékk báturinn í 28 róðrum eða 31,2 tonn í róðri og það gerir 186 tonna vikuafla miðað við 6 róðra. Og eins og er skrifað þarna að ofan þá er þetta ekki rosalegur afli heldur ótrúlegur afli.
Save the best for the last. myndi þýðast sem geymum það besta þar til síðast. á pottþétt við bátinn sem endar þetta yfrilit Þrátt fyrir þennan gríðarlega mikla afla hjá Alberti GK þá er báturinn sem endar þetta yfrilit samt sá bátur sem kom mér lang mest á óvart. Sá bátur hét Þórir RE.

Mynd Snorri Snorrason.
Já þegar ég sá að Þórir RE var þetta ofarlega þá var ég alltaf að leita að stálbáti því mér datt ekki til hugar að Þórir RE hefði verið eikarbátu. það var bara af og frá að það gæti hugsast . Eftir að ég fór að grafast betur fyrir um það þá kom í ljós að Þórir RE var eikarbátur og ekki nema 54 brl. Þrátt fyrir að vera þetta lítill þá gerði áhöfninn á Þóri RE þann ótrúlega atburð að verða þriðji aflahæsti báturinn í apríl. Og rétt er að rifja upp að í 4 sætinu var Huginn II VE. 2 sætinu Geirfugl GK og því fyrsta Albert GK. allir þessir bátar voru yfir 200 brl stálbátar.
Þórir RE byrjaði vertíðina á línu og var á henni fram í miðjan febrúar fór þá á netin og í mars þá gekk bátnum svona ekkert allt of vel var ekki með nema 131 tonn í 20 róðrum sem gerir 6,5 tonn í róðri og 39 tonna vikuafla.
Í apríl þá varð heldtur betur fiskur í netunum á þessum litla báti því Þórir RE landaði alls 655,3 tonnum í 28 róðrum eða 23,4 tonn í róðri. það gerir 140 tonna vikuafla.
Þess má geta að stærsti róður bátsins í apríl var all 55 tonn eftir daginn.
Er þar með þessu yfirliti lokið og öll þessi yfirlit eru á síðunn undir flokknuim "gömul tíð " og þar er hægt að lesa hin 6 yfirlitin.
Ég ætla að vona að menn hafi haft jafn gaman að því að lesa þessi yfirlit eins og ég hafði gaman að því að grafa þetta upp sem og búa þetta til.
kveðja
Gísli R

Skrifað af Gísli.R