Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 240
Gestir í dag: 89
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370884
Samtals gestir: 530352
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:52:06
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
29.04.2010 02:05
6.Hluti apríls árið 1970.
Jæja hérna kemur 6 hluti aprílsmánaðar árið 1970,. sem eins og hefur komið fram hérna að þá fóru alls 99 bátar yfir 400 tonnin í þeim mánuði. Hina hlutina 5 má lesa hérna í þessum flokki. Gömul Tíð.
Núna erum við kominn í 600 tonnin hvorki meira né minna og fyrsti báturinn sem í þessu yfirliti er ekki að stærri gerðinni,

Leó VE. Mynd Tryggvi Sigurðsson.
Já Leó VE var nú ekki stór bátur rétt um 100 brl. en þrátt fyrir stærðina þá varð báturinn aflahæstur allra Vestmannaeyjabáta þennan risamánuð. og afli bátsins var alls 600,1 tonn í 24 róðrum sem gerir 25 tonn í róðri. reiknað upp í 6 róðra þá er það150 tonna vikuafli. Stærstí róður bátsins var 55 tonn eftir daginn. Þetta er alveg rosalegur afli. 150 tonna vikuafli á ekki stærri báti.
Næsti bátur er nokkru stærri heldur enn Leó VE.

Þorri ÞH Mynd Hreiðar Olgeirsson.
´Fann því miður enga mynd af Þorra ÞH frá árinu 1970, en tel að þetta sé rétti báturinn. Þorri ÞH var mun stærri en Leó VE og gerði út frá Sandgerði þennan mánuð. Varð Þorri ÞH aflahæstur bátanna í Sandgerði, Afli bátsins var alls 603,3 tonn í 26 róðrum eða 23,2 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 139 tonna vikuafla. Ansi gott.
Næsti bátur er enn til í dag árið 2010 og er í fullri útgerð.

Þorsteinn RE mynd SNorri Snorrason.
á árinu 2010 er bátur gerður út sem heitir Kristín SU, árið 1970 þá hét þessi sami bátur Þorsetinn RE, og hafði verið gerður út á loðnu fram undir lok mars þegar skipt var yfir á netin. Og báturinn gerði út frá Keflavík og mokveiddi. fékk als 611,9 tonn í 25 róðrum sem gerir 24,4 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 146,8 tonna vikuafla.
Annar stór bátur er næstur í röðinni.

Þórkatla II GK mynd Emil Páll.
Þórkatla II GK var einn af þeim Grindavíkurbáturm sem fiskuðu vel í þessum mánuði og reyndar þeir bátur sem lögðu upp hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða fiskuðu allir vel. og má sjá í þessum flokki að það eru fjallað um fleiri báta sem lögðu upp þar. Þórkatla II GK aflaaði alls 614,8 tonn í 28 róðrum sem gerir 21,9 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 131,7 tonna vikuafla.
Þetta yfirlit endar á báti sem er eikarbátur. Já eikarbátur

Friðrik Sigurðsson ÁR Mynd Tryggvi Sigurðsson.
Allir þeir sem hafa fylgst með sjómennsku gegnuim árin vita að nafnið Friðrik Sigurðsson ÁR hefur verið ákaflega fengsælt. Og þó ég væri ekki viss um hvort þetta sé rétti báturinn þar sem hann var seldur árið 1971 til Grindavíkur og fékk þá nafnið Vörðunes GK. þá tel ég að í apríl árið 1970 hafi 77 brl eikarbáturinn verið Friðrik Sigurðsson ÁR. Þessi 77 brl bátur gerði sér lítið fyrir og varð fimmti aflahæsti báturinn á landinu í apríl og fiskaði alls 636,8 tonn í 28 róðrum sem gerir 22,7 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 136 tonna vikuafla.
Þvílíkt og annað eins.

Skrifað af Gísli.R