Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
15.04.2010 02:48
Metmánuður hjá Kleifabergi ÓF .
Það er nú ekki annað hægt en að taka ofan fyrir áhöfninni á frystitogaranum Kleifabergi ÓF sem núna í mars gerði sér lítið fyrir og landaði yfir 2000 tonnum í tveim löndunum og má kanski segja að þessi afli 2076 tonn af bolfiski á einum mánuði sé íslandsmet.
togarinn stundaði barnetshafið alveg í fyrri túrnum sem stóð í um 30 daga og var þá landað í Reykjavík alls 1015 tonnum, þar af var þorskuir 826 tonn. afli á dag var því um 34 tonn. Reyndar tekur um 4 daga að sigla á miðin. og er einungis er miðað við afli á veiðidag þá er hann 46 tonn á dag.
Seinni ´túrinn var að stærstum hluta tekinn í smugunni og svo nokkuð slatti í íslenskri landhelgi. aflinn var 1062 tonn eftir einngis 25 daga sem gerir um 43 tonn á dag. og miðað við það dagi um 4 daga að sigla á miðin þá gerir þetta afla á veiðidag uppá 65 tonn dag,. þvílíkt og annað eins. Smuguaflinn var 978 tonn og af því var Þorskur 531 tonn og Ufsi 393 tonn.
Ekki liggja fyrir tölur um aflaverðmæti en ef miðað er við Venus HF sem var með um 1100 tonn og aflaverðmæti upppá 300 milljónir þá má alveg gera ráð fyrir því að aflaverðmætið hjá Kleifaberginu ÓF núna í mars hafi verið á milli 450 og 500 milljónir króna.
Eitt er víst að hásetahluturinn er gríðarlegar góður fyrir þá sem fóru í báða þessa túra. Og má segja að áhöfnin á Kleifaberginu ÓF núna í mars hafi verið með bankastjóralaun og eiga þeir það svo sannarlega skilið, því það liggur rosaleg vinna á bakvið þennan mikla afla.

Mynd Guðmundur St Valdimarsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Skrifað af Gísli.R