Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 204
Gestir í dag: 80
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370848
Samtals gestir: 530343
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:23:54

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

10.04.2010 23:13

Bátar árið 1970. í apríl.

í aflayfirlitinu sem ég skrifaði hérna á síðuna og hef gert í nokkrum hlutum varðandi metmánuðinn í Apríl árið 1970, þá hef ég reynt að hafa myndir af bátunum og það hefur gengið svona upp og ofan að finna þær myndir.
tvær umsagnir hafa verið skrifaðar við nýjasta hlutann.  reyndar ekki til að segja skoðun sína á þessum mánuði, heldur benda á rangar myndir við 2 báta.

Fyrri ábendinginn kom frá Sigurði Garðarssyni varðandi Hólmstein ÁR.  ég birti mynd af Hólmsteini ÁR 27 sem hafði skipaskrárnúmerið 542.  enn sá bátur fékk ekki það nafn fyrr enn árið 1972.  bátur númer 574 er rétti báturinn, enn því miður þá finst enginn mynd af honum. 
Og þessi bátur 574 var ekki nema 30 brl að stærð og smíaður í danmörku árið 1954. 
þessi stærð á bátnuim 30 brl gerir þennan aflalista all rosalegan.
rifjum upp hvað var skrifað því Hólmsteinn ÁR 27 30 brl báturinn fiskaði hvorki meira né minna heldur enn 542,2 tonn í 29 róðrum sem gerir 18,7 tonn í róðri.  vikuafli uppá um 112 tonn. 

Verð nú bara að segja það að ég sagði lítið vá þegar ég sá þennan afla hjá Hólmsteini ÁR og hafði ég þá í huga að báturinn var 54 brl , enn nú þegar rétti báturinn er kominn fram og að hann er ekki nema 30 brl.  þá er ekki annað hægt að seja nema VÁ, VÁ.
sjáiði bara fyrir ykkur Sölkuna GK hans Grétars Mars koma með tæp 19 tonn í hverjum róðrum í 29 róðrum.  En Salka GK er kanski svipaður bátur og Hólmsteinn ÁR 27,574 var.

Hinn báturinn sem mér var bent á er Stígandi VE.  ég birti mynd af Stíganda VE sem áður hét Hrafnkell NK.  sá bátur er skráður seldur til eyja í febrúar árið 1971.  Drífa SH sem er með númerið 795 og hét Stígandi VE lengi vel var seldur árið 1965 og hét þá Frár VE og hét því nafnið fram til 1981.  Einn annar Stígandi VE var svo númer 68 og hét Guðrún Þorkelsdóttir SU , en sá bátur er ekki seldur til eyja fyrr enn árið 1977.  og þá var þar líka Helgi Flóventsson ÞH sem fékk þá nafnið Stígandi II VE. 

þetta er doldið furðulegt.  og miðað við þetta þá gat ég ekki annað enn haft Stíganda VE þarna sem áður hét Hrafnkell NK.  sá bátur hefur getað verið seldur til eyja árið 1970, enn ekki skráður fyrr enn 1971. 

og fyrir þá sem vita ekkert hvað ég er að skrifa um hérna þá  er hægt að lesa
Hluta 1. hérna
Hluta 2.Hérna
Hluta 3. Hérna
hluta 4.Hérna
Hluta 5.Hérna

Og það er einmitt í hluta númer 4 sem Hólmsteinn ÁR og Stígandi VE eru .

og varðandi það að þið séuð að segja ykkar skoðanir á því hvort þessi bátur sé réttur eða ekki . þá þigg ég það með þökkum. 

Tenglar