Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

03.04.2010 09:55

Ýmsir bátar í apríl árið 1970.

    Ég er buinn að vera að fjalla nokkuð um þá báta sem komust yfir 400 tonnin í apríl árið 1970.  Það voru reyndar ekki allir bátar sem stunduðu netaveiðar þennan mánuðinn og í þessu yfirlit verður litið á nokkra báta alls 11 talsins sem stundðu hinar og þessar veiðar.  þau veiðarfæri sem koma við sögu hérna eru , Net, Lína, Troll og handfæri.  Bátarnir eru af öllum stærðum og gerðum.

Fyrsti báturinn er jafnframt sá bátur sem alls enga mynd var að finna af þrátt fyrir mikla leit.  Þarna er verið að tala um bátin Andey GK 19 sem var 10 brl eikarbátur. Gerði Andey GK út frá Höfnum og varð aflahæsti handfærabáturinn í þessum mánuði.  fiskaði báturinn 35,9 tonn í 16 róðrum. sem gerir 2,3 tonn í róðri,.

    Í Þessu yfirliti er einungis fjallað um 2 netabáta og sá fyrri var einn af minnstu netabátunum.  Hét þessi bátur Farsæll GK og var 11 brl eikarbátur.  þrátt fyrir litla stærð þá mokfiskaði báturinn þvi hann landaði anns 117,3 tonnuim í 24 róðrum, sem gerir 4,9 tonn í róðrum. Reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 29 tonna vikuafla.  Og má geta þess að stærsti róður þessa 11 tonna báts var 12,2 tonn.
F

Farsæll GK. Mynd Emil Páll.

    
    Bátur númer 3 hét líka Farsæll og var líka GK.  en þó ekki gerður frá Grindavik því þessi Farsæll GK 76 var gerður út frá Höfnum og stundaði handfæraveiðar.  Farsæll GK 76 er minnsti báturinn í þessu yfriliti því hann var ekki nema 6,55 brl að stærð.  Fiskaði alls 31,5 tonn í 19 róðrum sem gerir 1,7 tonn í róðri.  

Farsæll GK 76, Mynd Erling Brim Ingimundarsson.  



    Bátur númer 4 er enn til í dag þrátt fyrir að hafa ekki verið gerður út í nokkurn tíma.  Það sem er merkilegt við þann bát frá þessum tíma er að hann var að mestu leyti gerður út á trolli þrátt fyrir að vera ekki nema 39 brl að stærð.  Þessi bátur hét Kári GK, og stundaði trollveiðar í þessum mánuði og þrátt fyrir litla stærð bátsins þá rótfiskaði hann, því Kári GK landaði samtals 207,8 tonnum í 22 róðrum, það gerir 9,4 tonn í róðri. og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 56,7 tonna vikuafla.

Kári GK mynd.  Tryggvi Sigurðsson.

    Bátur númer 5 er eini báturinn í þessu yfirliti sem yfir 400 tonnin komst, og var þetta trollbátur og eini trollbáturinn sem komst yfir 400 tonnin.  Þarna er verið að tala um Kofra ÍS sem var 176 brl stálbátur og gerði út frá Súðavík.  Má segja að Kofri ÍS hafi fiskað eins og togari því hann landaði einungis í 4 skipti og kom með 460,2 tonn og það gerir 115,1 tonn í róðri. 

Kofri ÍS ljósmyndari Ókunnur.

    Bátur númer 6 er sérstaklega fyrir hann Hafþór á Húsavík.  En Hafþór hefur látið mér í tjé myndir á síðunni og það verður að launa það vel.  Þarna er um að ræða bát með nafinu Kristbjörg ÞH.  Nafnið Kristbjörg er húsvíkingum mjög kært vegna þess að nokkuð margir bátar hafa verið gerðir út frá þeim bæ með þessu nafni, og um tíma voru þeir tveir.  Kristbjörg ÞH og Kristbjörg II ÞH.  Kristbjörg II ÞH var þar á undan Kristbjörg ÞH og er það báturinn sem um ræðir í þessu tilfelli.  Kristbjörg ÞH réri frá Húsavík og stundaði netaveiðar.  Þrátt fyrir að vera ekki með mokafla eins og bátarnir fyrir sunnan þá varð Kristbjörg ÞH engu að síður aflahæsti ´netabáturinn sem gerði út á norðulandi.  fiskaði báturinn 95,8 tonn í 17 róðrum sem gerir 5,6 tonn í róðri. reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 34 tonna vikuafla.

Kristbjörg ÞH.  Mynd Hafþór Hreiðarsson.

    Þrátt fyrir að aðallínuveiði landsins hafi verið á Vestfjörðrum þá gerðist það í apríl mánuði árið 1970 að Línuveiði ansi margra báta frá suðuvestulandinu og þá aðalega frá Sandgerði og Keflavík var mun meiri heldur enn bátanna frá vestfjörðurm.  Einn af þeim bátum sem stundðu línuveiðar var Manni KE sem réri frá Keflavík.  Manni KE var 72 brl eikarbátur og landaði alls 228,8 tonnum í 24 róðrum sem gerir 9,5 tonn í róðri, og reiknað upp í 6 róðra þá gerir það 57 tonna vikuafla.  og það verður að teljast ansi góður vikuafi á línu.

Manni KE.  Mynd Snorri Snorrason.  

    Bátur númer 8 stundaði trollveiðar og hét Ólafur KE.  Ólafur KE var ekki nema 40 brl eikarbátur og eins og Kári GK þá var mokveiði.  Ólafur KE fiskaði alls 237,6 tonn í 21 róðri sem gerir 11,3 tonn í róðri.  Þar sem róðrarnir eru ekki nema 21 þá gerir það um 5 róðra að meðataali á viku og geri því 56,5 tonna vikuaafla.  miðað við 6 róðra þá eru það 67,8 tonn afli.

Ólafur KE. Mynd Snorri Snorrason.

    Bátur númer 9 var alla tíð gerður út frá Sandgerði og bar aðeins eitt nafn.  Steinunn Gamla KE. Steinunn Gamla KE stundaði línuveiðar og varð næst aflahæsti línubátur landsins í apríl.  Fiskaði Steinunn Gamal KE alls 248,2 tonní 22 róðrum sem gerir 11.3 tonn í róðri.  miðað við 6 róðra þá gerir það 67,6 tonna vikuafla.

Steinunn Gamla KE.  Mynd Valur Kristinsson.

Bátur númer 10 hét Sævar KE og stundaði trollveiðari og lagði upp í Sandgerði.  báturinn landaði nú ekki oft því hann landaði alls 16 sinnum enn var samt með 206,8 tonn afla sem gerir 12,9 tonn í róðri.  það gerir sirka 4 róða á viku og gerir því 51,6 tonna vikuafla. 

Sævar KE.  Mynd Þóroddur Sævar Guðlaugsson.

    Til er ensk máltæki sem er " save the best for the last", eða.  Geymum það besta þar til síðast.  og það á vel við um síðsta bátinn í þessu yfirliti.  Þessi bátur gerði sér lítið fyrir og varð aflahæstur allra línubáta á landinu í apríl mánuði.  Kemur mjög á óvart.  Þarna er verið að tala um bát sem eins og Steinunn Gamla KE var alla tíð gerður út frá Sandgerði og báðir af sama fyritækinu Miðnesi Hf.  Að sjálsögðu er verið að tala um bátinn Muninn GK 342.  Muninn GK var 53 brl eikarbátur og að þessi liti bátur hafi náð að vera hæstur línubátanna er vægast sagt magnaður árangur.  Fiskaði Muninn GK alls 260,6 tonn í 24 róðrum sem gerir 10,9 tonn í róðri.  reiknað í 6 róðra þá gerir það 65 tonna vikuafla. 

Munin GK mynd Snorri Snorrason.

Er þar með þessu langa yfrilit lokið.  og ég vona að ykkur líki við þessa tilbreytingu frá netabátunum sem ég hef verið að fjalla um í apríl 1970.

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1096
Gestir í dag: 295
Flettingar í gær: 1632
Gestir í gær: 378
Samtals flettingar: 2617547
Samtals gestir: 582475
Tölur uppfærðar: 22.5.2012 18:10:43

Tenglar