Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
03.04.2010 07:57
5.hluti Apríls árið 1970.
Páskahelgin og ansi rólegt yfir sjávarútveginum , og því er ekki úr vegi að halda áfram meða skoða bátanna í Apríl árið 1970. og þetta yfirlit verður nokkuð stórt. því teknir verða fyrir 8 bátar, og er þá línann kominn í 600 tonnin.
Við byrjum á Höfrungi III AK. Hann er stærsti báturinn sem fjallað hefuru verið um í þessum yfirlitum um apríl. Höfrungur III AK var 276 brl að stærð. og fram að þessum mánuði þá stundaði bátuinn loðnuveiðar, kláraði þær í byrjun apríl og fór þá á netin.
Höfrungur III AK fór ekki nema í 19 róðra enn landaði samt 523,8 tonnum, sem gerir 27,5 tonn í róðri. reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 165 tonna vikuafla.

Höfrungur III AK. Mynd Snorri Snorrason.
Næstur í röðinni er Stígandi VE. Þó svo að upprunalegi Stígandi VE sé ennþá til undir nafninu Drífa SH, þá er það ekki sá bátur sem um ræðir í þessu tilfelli. Stígandi VE hét áður Hrafnkell NK og var 91 brl eikarbátur.
Þarna í apríl mánuði þá aflaði Stígandi VE 526,7 tonn í 27 róðrum sem gerir 19,5 tonn í róðri. og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 117 tonna vikuafla.
Stígandi VE. mynd Tryggvi Sigurðsson
Þriðji báturinn í þessu yfirliti er bátur sem hefur ætíð vakið athygli mína fyrir mikin afla þrátt fyrir að hafa verið ekki beint stór bátur. Þessi bátur hét Hólmsteinn ÁR og var ekki nema 54 brl að stærð eikarbátur. svo til jafnstór og Gunnar Hámundarsson GK. Hólmsteinn ÁR réri alls 29 sjóferðir og landaði 542,2 tonni sem gerir 18,7 tonn í róðri. Reiknað upp í 6 róðra þá geir það 112 tonna vikuafla. rosalegur afli á ekki stærri báti.
Hólmsteinn ÁR. Mynd Tryggvi Sigurðsson.
Fjórði báturinn er líka ÁR bátur og það sem meira er að hann er minni heldur enn Hólmsteinn ÁR var. Ansi ótrúlegt. Sá bátur hét Fróði ÁR og var ekki nema 49 brl að stærð. Fróði ÁR var einn af nokkuð mörgum bátum sem fór í 30 róðra. sem sýnir að ansi vel hafi viðrað til róðra í þessum mánuði fyrir 40 árum síðan. Þessi litli bátur vægast sagt mokfiskaði því hann aflaði 556,1 tonn í þessum 30 róðrum sem gerir 18,5 tonn í róðri og reiknað upp í 6 róðra þá gerir það 111 tonna vikuafla. ótrúleg tala á ekki stærri báti.
Því miður þá fann ég enga mynd af Fróða ÁR sem hafði skipaskrárnúmerið 1082. sá bátur var smíðaður í stykkishólmi árið 1969.
fimmti báturinn er stálbátur og var einn af aflahæstu bátum þessa vertíð. Þessi bátur hét Arnfirðingur RE. og þrátt fyrir að vera RE þá lagði hann alltaf upp hjá Arnarvík í Grindavík á þessum árum. Arnfirðingur RE var 198 brl stálbátur. í þessum mánuði þá aflaði báturinn 573,6 tonn í 27 róðrum sem gerir 21,2 tonn í róðri og reiknað upp í 6 róðra þá gerir það 127,5 tonna vikuafla.

Arnfirðingur RE, Mynd Snorri Snorrason.
Sjötti báturinn gerði líka út frá Grindavík í þessum mánuði og lagði upp hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða. Þar á bær voru gerðir út bátar sem voru lengi gerðir út í Grindavík og í dag árið 2010 er t.d Þórkatla GK gerð úr þaðan. þessi bátur sem þarna um ræðir hét Þorbjörn II GK og var einn af stóru eikarbátunum því hann var 168 brl eikarbátur, en var síðan endurmældur árið 1970 og fór þá niður í 131 brl. Þorbjörn II GK fiskaði þarna alls 577,5 tonn í 28 róðrum sem gerir 20,6 tonn í róðri og reiknað upp í 6 róðra þá gerir það 124 tonna vikuafla.
Valeska EA, sem upprunalega hét Þorbjörn II GK. Mynd Hreiðar Olgeirsson
sjöundi báturinn var gerður út frá Reykjavík og þar á bæ voru gerðir út nokkrir bátar sem iðulega fiskuðu vel á vertíð. Þeir áttu það reydnar allir sameiginlegt að vera nokkuð stórir og stunduðu sumir útilegur. enda langt að sækja frá Reykjavík. Þessi bátur hét Ásþór RE og var má segja alla sína tíð mikill netabátur, því hann hét síðan Stafnes KE . Ásþór RE var 193 brl stálbátur. Báturinn fiskaði alls 581,6 tonn í einungis 24 róðrum sem gerir 24,2 tonna meðalafla og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 145 tonna vikuafla.

Ásþór RE mynd Hafþór Hreiðarsson.
Þrátt fyrir að vera nálgast 600 tonna múrinn þá erum við ekki búinn að segja skilið við eikarbátanna, því áttundi báturinn var einmitt eikarbátur og það ekki af stærri gerðinni. Þessi bátur lagði upp hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða og hét einmitt Þórkatla GK. Þórkatla GK var 74 brl eikarbátur og fiskaði alls 593,2 tonn í 28 róðrum sem gerir 21,2 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 127 tonna vikuafla.

Þórkatla GK mynd Tryggvi Sigurðsson.
Eins og sést á þessum þá svo til skipti ekki máli hvað báturinn var stór, það var mokveiði og meira á eftir að koma.

Skrifað af Gísli.R