Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 240
Gestir í dag: 89
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370884
Samtals gestir: 530352
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:52:06
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
28.03.2010 08:47
Apríl mánuður árið 1970. 4 hluti.
Ég birti fyrir nokkru lista yfir 4 báta sem komust yfir 400 tonnin árið 1970 í apríl mánuði. og núna er komið að öðru holi af bátum.
Fyrsti báturinn í þessum yfirliti hét árið 1970. Gissur ÁR og var smíðaður í danmörku árið 1956 og var eikarbátur. Mældist báturin 56 brl.
Gissur ÁR var nú ekki beint stærsti báturinn sem réri þessa vertíð en það stoppaði bátinn ekkert því hann fiskaði alls 490,3 tonn í 28 róðrum sem gerir 17,5 tonn í róðri. reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 105 tonna vikuafla.

Mynd Snorri Snorrason.
Rán SU sem síðar varð Gissur ÁR
Næstur í röðinni er Reynir ÁR 18. Báturinn var smíðaður í Danmörku árið 1958 og var 72 brl.Þessi bátur er enn til árið 2010. og var t.d gerður út á net og humri á árinu 2009. Hefur heitið svo til mest alla tíð nafniu Reynir, VE, AK ÁR og GK. Mikilll aflabátur. Og í Apríl árið 1970 þá gerði þessi bátur sér lítið fyrir og komst yfir 500 tonnin. því báturinn aflaði alls 513,9 tonn í 28 róðrum sem gerðir 18,4 tonn í róðri. Reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 110 tonna vikuafla.

Mynd. Tryggvi Sigurðsson.
Reynir VE 15 sem varð síðan varð Reynir ÁR 18.
Við förum ekki langt í þriðja bátinn. því við förum aftur til Þorlákshafnar. þar voru nokkrir bátar að róa auk Gissurar ÁR sem getið er um að ofan. Þriðji báturinn hét Klængur ÁR 2. Sá bátur var smíðaður í Danmörku árið 1958 og var 71 brl. að nokkur leyti systurbátur Reynis ÁR. Klængur ÁR rótfiskaði því báturin landaði 523,4 tonnum í 28 róðrum sem gerir 18,7 tonn í róðri að meðatali. Reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 112 tonna vikuafla.

Mynd SNorri Snorrason.
Fjórði og síðasti báturinn í þessu yfirliti er jafnframt eini stálbáturinn sem við fjöllum um núna. Sá bátur var gerður út fram til ársins 2008 þegar hann var seldur í brotajárn. Er þarna að tala um 582. Hring GK. Hringur GK var smíðaður í hollandi árið 1955, og má segja að nafnið Hringur hafi verið hvað lengst á honum, sem Hringur SI, GK og SH.
Í þessum mánuði þá fór Hringur GK í 28 róðra eins og flestir bátanna gerðu og fiskaði báturinn 527,6 tonn sem geriri 18,9 tonn í róðri. reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 113 tonn í vikuafla.

Mynd SNorri SNorrason.
Þrátt fyrir mikla leit þá fanst enginn mynd af bátnum þegar hann hét Hringur GK 18 árið 1970. og er því hérna mynd af honum þegar báturinn hét Hringur SH.
Eins og sést á þessu yfirliti þá er þetta enginn smáafli og meðalaflinn í róðri sýnir það svo sannarlega. En meira á eftir að koma.

Skrifað af Gísli.R