Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
23.03.2010 18:51
Nokkrir bátar í Apríl árið 1970.
Þetta er þriðji pistilinn um ´mokmánuðinn í Apríl árið 1970. búið er að koma fram að 99 bátar komust yfir 400 tonnin. og hérna koma nokkrir .
Það eru einungis myndir af 2 bátum, en hægt er að sjá myndir af Bergvík KE og Ólafi II KE inná.,www.snorrason.is
Bergvík KE sem var 71 brl eikarbátur var með 487,8 tonn í 27 róðrum sem gerir 18,1 tonn í róðri. og ef miðað er við 6 róðra sem var algengur róðra fjöldi báta á viku þá gerir það 108,6 tonn.
Ólafur II KE sem var 75 brl stálbátur, var með 418,6 tonn í 28 róðrum. Það gerir 14,9 tonn í róðri. miðað við 6 róðra þá gerir það 89,4 tonn í 6 róðrum .
Máni GK sem var 71 brl eikarbátur var með 438,8 tonn í 28 róðrum. Það gerir 15,7 tonn í róðri. Og gerir það 94,1 tonn sem vikuafla í 6 róðrum.
Mynd. www.eldey.123.is
Og svo minnsti báturinn í þessum yfirlit. og kanski sá sem vekur hvað mesta athygli. þessi bátur hét Blakkur RE og var ekki nema 45 brl. enn gaf stærri bátunum ekkert eftir og fiskaði 454,9 tonn í 27 róðrum. og gerir það 16,8 tonn í róðri. vikuafli 101,1 tonn í 6 róðrum.
Mynd Hafþór Hreiðarsson.
Eins og sést á þessu yfirliti þá er þetta rosalegur afli, og meira á eftir að koma.
