Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 221
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370865
Samtals gestir: 530348
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:40:23

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

20.03.2010 22:30

Risa Apríl mánuður árið 1970.

 Eins og þið kanski vitið þá er ég ekki bara að halda um þessa aflalista sem eru á síðunni því ég er líka að safna sama aflatölum.  og hluti af þessari síðu er að koma nokkrum þeim tölum hérna á síðuna.  þó svo að ég viti reyndar ekki hvort þið hafið áhuga fyrir því.  Enn þetta dæmi um Apríl árið 1970 er svo svaklegt er það er ekki hægt að sleppa því að fjalla EKKI um það. 

  mikið held ég að það hefði veirð gaman að vera til í april árið 1970.  því í gegnuim þetta aflatölugrúsk mitt þá hef ég ekki séð svona marga báta fiska jafn mikið og einmitt í þessum umtala mánuði árið 1970.  
    ég var buinn að minnst á að 35 bátar voru komnir yfir 400 tonnin á svæðinu frá akranesi og til keflavíkur.  núna er ég búinn að fara í gegnum allan apríl og hann er vægast sagt rosalegur.
    Mælikvarði minn á stórar tölur er bara VÁ.  og það eru ansi mörg VÁ í þessuim mánuði. 
Annars eru helstu tölur fyrir þennan mánuð eftirfarandi.

Heildarafli í apríl árið 1970 var alls 171.140 tonn og er loðna inní þeirri tölu.

tek nokkur frysti hús hérna.

Miðnes HF í Sandgerði tók á móti 1970 tonnum í apríl.
Meitilill í Þorlákshöfn tók á móti 4362 tonnum,
Fiskiðjan í Vestmannaeyjum tók á móti 4621 tonnum,
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja tók á móti 4237 tonnum,
Ísfélag Vestmannaeyja tók á móti 3687 tonnum,
Vinnslustöðin tók á móti 4315 tonnum.

Og svo eru það öll þessi VÁ.  því alls 99 bátar komust yfir 400 tonnin í apríl árið 1970.  99 bátar þetta er ótrúlega mikill fjöldi, voru þetta allt netabátar nema einn trollbátur Kofri ÍS.

nánari sundurliðun á þessum 99 bátum var þannig að :
1 bátur náði yfir 800 tonnin.
1 bátur var með 700 til 800 tonn
7 bátar voru með 600 til 700 tonn
23 bátar voru með 500 til 600 tonn
67 bátar voru með 400 til 500 tonn

auk þess þá var rosaleg veiði hjá línubátuunuim og þá sérstaklega þeim bátum sem réru frá Sandgerði og nokkrir þaðan komust yfir 200 tonnin á línuna. 

Ég kem seinna með nokkur nöfn, því ég ætla að reyna að finna myndir af bátunum.

enn ég skil eftir handa ykkur smá verkefni.  hvaða 2 bátar eru þetta sem fiskuðu svona rosalega þar sem annar komst í 700 tonn enn hinn í 800 tonnin.

þess má geta að heildarafli þessara 99 báta var alls 48252 tonn eða 487 tonn á bát og við skulum enn og aftur hafa í huga að þetta er bara EINN mánuður. 

Tenglar