Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
10.02.2010 19:53
EKKI mok heldur MET afli hjá Muggi KE
Jahérna. á tímum þar kvótinn er skorinn við nögl og bátar og skip víða um land eru svo til við að stöðva vegna skorts á kvóta þá er samt sem áður gríðarlega mikil veiði eins og sjá hefur mátt hérna á síðunni.
Þó svo að Tryggvi Eðvars SH og Sirrý ÍS hafi tvibætt aflametið hjá Ragnari SF, þá held ég að aflinn hjá Muggi KE toppi allt sem hægt er að toppa þessa daganna.
Báturinn hefur verið að róa á línu frá Sandgerði og er einn af fáum smábátum yfir 10 BT hérna suðvestanlands sem rær með bala. Getið var um það á nýjsta smábátalistanum yfir 10BT að Muggur KE hafi komið með tæp 12 tonn að landi eftir einn róður, enn hann fékk þennan afla á einungis 23 bala eða um 515 kíló á bala.
Ef hægt var að toppa þetta þá gerðu þeir það núna 10.febrúar. þeir fóru aftur með 23 bala og komu til hafnar með tæp 13 tonn, og reyndar sögðu þeir að uppistaðan hefði fengist á 18 bala. þessi afli er um 570 kíló á bala og ef miðað er við þessa 18 bala þá eru það um 723 kíló. Fékkst þessi afli um 17 mílur út frá Sandgerði. Þetta er algert metafli á bala og leitun af öðrum eins afla og uppistaðan þorskur.
Og það verður að koma inná bátinn sjálfann Mugg KE, því þvílík er burðargetan hjá bátnum að það sá varla á honum þegar hann kom til hafnar. allt komst fyrir í lest og samt var pláss fyrir meira. Þannig að ef á að spá í hvaða smábátur sé burðarmestur smábáta þá er Muggur KE þar örugglega ansi ofarlega á blaði.
Má svo geta þess að lokum að einungis tveir menn róa á bátnum feðganir Jón Jóhannsson og Jóhann Jónsson.
Var á bryggjunni þegar báturinn kom að landi og tók þá eftirfarandi myndir.
Myndir Gísli Reynisson
