Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
14.10.2009 03:10
Aldan RE 327 árið 1968
Eins og kemur fram í stóru færslunni hérna að neðan þá mun ég fjalla nánar um árið 1967. En í millitíðinni þá langar mér aðeins að að skoða einn bát sem ég valdi af handahófi frá árinu 1968. Er að vinna í því ári núna að skrifa niður tölur.
Báturinn sem varð fyrir valinu hét Aldan RE 327.
Þrátt fyrir að báturinn væri RE og þar með gerður út frá Reykjavík þá var sú höfn ekki beint hans aðallöndunarhöfn heldur var það Sandgerði.
Aldan RE lagði nefnilega upp afla hjá Miðnesi HF.
árið 1968 þá hóf báturinn róðra í Febrúar og þá með línu. Landaði hann tæpum 12 tonnum eftir 3 róðra.
Í Mars sama ár þá var báturinn áfram á línu og fékk 31 tonn í 9 róðrum eða um 3.4 tonn í róðri.
Ágætlega fiskaðist í Apríl en þá var Aldan RE enn á línu og fór í 13 róðra og fékk 43 tonn eða um 3.3 tonn í róðri.
Fram til 11 maí sem er lokadagur Vetrarvertiðar þá kom Aldan RE með 12 tonn í 6 róðrum á línu.
Skipti svo yfir á handfærin og landaði tæpum 8 tonnum eftir 4 róðra.
Eins og um svo marga handfærabáta sem gerðu úr frá suðvesturhorni landsins og þar með talið Akranes þá var ufsaveiðin mjög mikil hjá svo til öllum Handfærabátunum og Aldan RE var þar enginn undantekning.
Í Júní þá fór báturinn ekki nema 2 róðra enn kom með 19.2 tonn sem gerir 9.6 tonn í róðri.
Þetta stutta yfirlit nær til Júliloka árið 1968 og þá var Aldan RE kominn vestur til Suðureyrar og gekk mjög vel þar . landaði í 7 skipti samtals 50 tonnum. eða 7.1 tonn í róðri.
var þá aflinn komin í um 174 tonn frá áramótunum 67/68.

Mynd Snorri Snorrason.

Skrifað af Gísli.R