Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 423
Gestir í dag: 160
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2371067
Samtals gestir: 530423
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:21:41

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

13.09.2009 18:30

Brjálað að gera í Grindavík í Mars árið 1968

Er kominn á fullt í að skrifa niður árið 1968 úr skýrslum.  Mars og apríl hafa alltaf verið stóru mánuðurnir á vetrarvertíð og þá sérstaklega áður enn kvótinn kom á.  Bátar réru stíft og fiskuðu vel í þessum tveimur mánuðum.
    Í mars árið 1968 þá var heldur betur líf í Grindavíkurhöfn því nokkuð vel virðist hafa viðrar til róða því bátar réru nokkuð stíft og afli var mjög góður.  skulu tekin hérna 3 dæmi um fiskvinnsluhús sem ansi miklu var landað í.

Hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða var landað 1006 tonnum og þar voru atkvæðamestir Þórkatla II GK 197 sem fór í 23 róðra og var með 321 tonn sem allt fékk í net. 
Þórkatla GK 97 sem var mun minni bátur enn Þórkatla II GK var með 220 tonn í 21 sjóferð allt í net.

Hjá Þorbirni HF var miklum afla landað eða alls 1616 tonnum og þar skipuðu Hrafnarnir sér allir á bekk í löndun. 
Langatkvæðamestur Hrafnanna var Hrafn Sveinbjarnarsson II GK 11 sem gerði sér lítið fyrir og fór yfir 400 tonn í þessum mánuði eða 424 tonn í 28 róðrum. 

Hrafn Sveinbjarnarsson GK 255 var með 354 tonn í 28 róðrum

og Hrafn Sveinbjarnarsson II GK 10 var með 262 tonn í 21 róðrum.  reyndar voru 28 tonn af þeim afla fengin á línu í 6 róðrum.

Kanski hvað mesta athygli í þessum mánuði vakti hversu miklum afla var landað hjá fyrirtæki sem hét Arnarvík hf.  Þar var landað hvorki meira né minna enn 1507 tonnum af einungis 4 bátum.
Bátarnir sem lönduðu þar voru engir aukvisar. heldur voru það Albert GK 31, Arnfirðingur II RE 212 , Geirfugl GK 66 og Staðarberg GK 350 sem var á trolli enn hinir voru á netum.

Geirfugl GK mokfiskaði og fékk alls 548 tonn í 28 róðrum sem gerir um 22 tonn í róðri.  þar af fékk Geirfugl GK 281 tonn í einungis 12 róðrum sem gerir rúm 23 tonn í róðri.

Arnfirðingur II RE mokfiskaði líka og var með 464 tonn í 28 róðrum sem gerir um 18 tonn í róðri.

Albert GK var með 366 tonn í 24 róðrum.

Afla var landað á nokkrum stöðum til viðbótar í Grindavík þennan mánuð og má þar nefna Hraðfrystihús Grindavíkur sem tók á móti rúmum 600 tonnum, og voru þar Máni GK og Már GK aflahæstir báðir með um 200 tonn sitthvor báturinn. 

Það er því óhætt að segja að brjálað hafi verið að gera í Grindavík á þessum ´tima og kanski einhverjir lesendur síðunnar hafi verið að vinna eða á sjó einmitt á þessum tíma sem þessi pistill á við.

Tenglar