Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

20.08.2009 02:22

"Tær snilld þessi síða"

Titill þessa pistils eru umsögn sem var send mér hérna í gegnum síðuna.  og það er ansi gott veganesti að fá þessi jákvæði skilaboð þann 19 ágúst, og kanski má líta á hana sem litla afmælisgjöf en ég á víst afmæli í dag 20 ágúst.

langaði svona aðeins að fara útí síðuna þar sem ég veit að þónokkuð af nýju fólki er að koma á hana. 
 Síðan byggist fyrst og fremst uppá aflalistunum sem sjá má hérna og hefur oft skapast ansi mikið líf í kringum þá lista og þá fyrst og fremst á smábátalistanum yfir 10 BT, hann er vinsælasta efni síðunnar.  
Þessi síða er fyrst og fremst áhugamannasíða eins og flest allar síðurnar á 123.is, og er í hópi með nokkrum sjávarútsvegsfréttasíðum, nefni helst www.skip.is og www.sax.is.  þær síður eru reyndar reknar sem atvinnutæki og fá sínar tekjur að nokkru leyti af auglýsingum. Ég er nú reyndar ekki svo heppinn að hafa síðuna fulla af auglýsingum enn vona að það komi einn daginn, þónokkrir hafa reyndar styrk síðuna og eiga þeir aðilar og fyrirtæki þakkir skildar fyrir það viðvik.

Ég hef reynt eftir fremsta megni að sinna öllum veiðarfærunum, en þó hef ég ekki enn sinnt uppsjávarskipunum nægilega vel sem of frystitogurunum. Allir listar hérna á síðunni eru handreiknaðir og tekur það misjafnan tíma eftir þvi hversu stórir þeir eru, bara svo dæmi sé tekið þá er handfæralistinn gríðarlega stór og í júlí þá þurfti ég að reikna yfir 400 báta til þess að búa til lista og gat það tekið allt uppí 5 klukkutíma.  
Ég hef ekkert sérstaklega einbeitt mér að myndum, veit reyndar að myndir af sjónum er mjög vinsælt efni. Síðurnar hans Hafþórs, Þorgeirs, Sævars og Ragnar p svo dæmi sé tekin sinna því hlutvekri mjög vel, er tengill inná allar þær síður hérna neðst á þessari síðu..  sjómenn víða um land hafa verið duglegir að senda myndir og reyni ég eftir fremsta megni að birta þær.  og svo má ekki gleyma mydunum hans Alla á Ísafirði enn ég er ´buinn að birta 3 og á helling eftir.

Svo að lokum það er gott að fá hrós enn ekki síður gagnrýni og ef menn finna eitthvað að síðunni þá bara láta vaða.  Sandgerðingar þola allt heheheh

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1345
Gestir í dag: 313
Flettingar í gær: 1352
Gestir í gær: 376
Samtals flettingar: 2616164
Samtals gestir: 582115
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 20:45:25

Tenglar