Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
09.08.2009 20:35
Árið 1981
Næsta mynd frá Alla er tekin um haustið árið 1981, þá um borð í Magnúsi Kristni GK sem Guðjón Bragason gerði út. Þarna voru þeir á Reknetaveiðum í austfirskum fjörðum.

Nokkrar myndir eiga eftir að koma frá veru Alla um borð Í Magnúsi Kristni GK, en báturinn var smíðaður árið 1963 og hét þá fyrst Hilmir II KE. var hann 107 brl eikarbátur. Var báturinn svo seldur til Súðavíkur og hét þar Valur ÍS, þaðan til Ólafsvíkur og hét þar Jökull SH, þaðan til Guðjóns Bragasonar og þaðan árið 1982 til Ólafsvíkur og hér þar Brimnes SH. báturinn brann og sökk árið 1983, áhöfninn 5 manns bjargaðist.
Myndin er af Bjarna Gíslassyni SF og er nokkur tenging við þann bát og sögu Magnúsar Kristins GK og Sandgerði. Þar sem báturinn heitir núna Valur ÍS og er gerður út frá Sandgerði á sæbjúguveiðar.
Skrifað af Gísli.R
