Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
06.08.2009 21:23
Kappsigling á loðnu árið 1977
Það má segja að mjög víða um land þá séu til myndaalbúm í hillu hjá hinum ýmsum sjómönnum, og margar þessara mynda koma aldrei fram á sjónarsviðið. Því er það með nokkru stolti að ég hef komist í eitt þessara albúma því Aðalsteinn Sveinsson á Ísafirði hefur gefið mér leyfi fyrir að birta myndir frá honum hérna á síðunni. Aðalsteinn er bróðir Reynis Sveinssonar sem er pabbi minn. Alli eins og hann er kallaður stundaði sjómennsku í þónokkuð mörg ár og var iðulega með myndavélina meðferðis, lengst fór hann til veiða undir ströndum afríku.
Fyrsta myndin frá honum er tekin árið 1977 en þá var Alli á Alberti GK og er þarna á leið til Vestmanneyja og er Huginn VE þarna að fara frammúr honum. Mjög flott mynd og tilvalin sem fyrsta mynd.
Færi ég Alla bestu þakkir fyrir að láta mér í tjé myndir og ég vona að lesendur síðunnar kunni að meta þetta framtak
Skrifað af Gísli.R
