Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 210
Gestir í dag: 81
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370854
Samtals gestir: 530344
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:16:40
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
11.05.2009 01:45
Lokadagur Vertíðar 2009
11. Maí. var oft á tíðum dagur mikilla tíðinda og jafnframt sá dagur sem gat ráðið úrslitum um hvort þessi eða hinn var aflahæstur á vertíð. Það var þá enn er ekki lengur. Ég hef nú haldið þeim sið undanfarin 15 ár eða svona að halda utan um vertíðir, og hef iðulega búið til lista um aflahæstur bátanna. Hefur sá listi miðast við þá báta sem yfir 400 tonn komast.
Ekki liggja alla tölur fyrir varðandi endanlega niðurstöðu þessara vetrarvertíðar enn allir mánuðir er komnir á blað hérna og á bara eftir að koma tölunum saman og gefa út endalega niðurstöðu sem mun síðan birtast í Fiskifréttum.
ÉG ætla að renna í gegnum flokkanna og aðeins að velta fyrir mér hver verður hæstur í hverjum flokki fyrir sig. Þetta eru bara vangaveltur og ber að taka sem slíkt.
Dragnót:
Ég býst við því að slagurinn um aflahæsta dragnótabátinn á vertíð 2009 verði milli Sæberg HF og Hásteins ÁR. þeir bátar sem þar á eftir geta komið gætu verið Rifsari SH, Steinunn SH, Örn KE og Margrét HF.
Troll :
Það eru nokkrir sem koma til greina hérna, enn fastlega bá búast við að Steinunn SF verði mjög ofarlega á blaði. aðrir gætu verið Helgi SH, Bergey VE og Vestmannaey VE.
Ísfiskstogarar:
Þótt þessi flokkur eigi svo til ekki heima í umfjöllun um vertíð er engu að síður hægt að skoða þá. Að mínu mati eru tveir togarar sem standa´uppúr hérna, og það eru Sólbakur EA og Ottó N Þorláksson RE.
Smábátar undir 10 BT.
Búast má við að Einar Hálfdáns ÍS verði hæstur, þar á eftir gætu svo komið Glaður SH og Ásdís ÍS.
Smábátar yfir 10 BT.
Í þessum flokki þá hafa nokkrir smábátar náð því að komast yfir 400 tonnin á vertíð. ég býst við því að þeir munu verða nokkru færri núna heldur enn undanfarin ár og munar þar mestu um arfalélegan mars mánuð sem var mikill brælumánuður. ÉG býst við að Guðmundur Einarsson ÍS verði hæstur. Aðrir bátar sem gætu náð um og yfir 400 tonnin, gætu verð Muggur KE, Sirrý ÍS, Bíldsey SH, Ragnar SF, Dögg SF og hugsanlega Tryggvi Eðvars SH.
Línubátar:
ÞAð eru 3 bátar sem koma til greina, Kristín ÞH, Jóhanna Gísladóttir ÍS og Páll Jónsson GK
Netabátar undir 50 BT.
Í þessum flokki er ekkert vafamál að Bárður SH er hæstur. þeir sem gætu verið þar á eftir gætu verð t.d Sæþór EA og Keilir II AK. Verður líka fróðelgt að sjá hvar Sæbjörg EA verður, enn Sæbjörg EA varð hæstur í þessum flokki í apríl.
Netabátar yfir 50 BT.
Aðallistinn og vetrarvertíðir snerust að miklu leyti um netabátanna hérna á árum áður. Slagurinn um aflahæsta netabátinn verður á milli Hvanney SF og Erling KE, Hvanney SF hætti á netaveiðum um miðjan apríl enn Erling KE heldur áfram út vertíðina, að mínu mati verður líklegast mjótt á milli þeirra. Aðrir bátar sem gætu komið á eftir þeim tveim, eru Ársæll ÁR, Friðrik Sigurðsson ÁR, Þórir SF, Erlingur SF og hugsanlega Marta Ágústdóttir GK enn Marta er enn að veiðum .

Skrifað af Gísli.R