Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 2017
Gestir í dag: 435
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364167
Samtals gestir: 529055
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 21:43:21

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

15.04.2009 09:32

Mok steinbítsveiði árið 1967.

    Söfnun aflatalna gengur ansi vel núna, var að klára að skrifa niður apríl árið 1967 og þar stóð uppúr ansi góð steinbítsveiði hjá bátum sem gerðu út frá Vestfjörðum.  Ætla ég að renna í gegnum 3 báta sem stóðu uppúr af bátunum fyrir vestan í apríl árið 1967.

    Það þykir tíðindum sæta við þennan afla að þessir bátar voru allir með meiri afla heldur enn t.d aflahæsti netabáturinn bæði frá Snæfellsnesi og vestfjörðum var með þennan mánuð.  Enn þessir voru ekki þeir einu sem fengu góðan afla. því nefna má að Páll Jónsson ÁR ( skipaskrárnúmer 720) sem var 37 brl eikarbátur komst í 19 tonn í einni sjóferð.  

    Byrjum á Ísafirði.  Þar gerði út í mörg bátur sem hét Guðný ÍS 266.  Guðný ÍS var 75 brl stálbátur og er t.d systurbátur Marons GK sem er gerður út frá Keflavík í dag.
 

Guðný ÍS.

Aflinn hjá Guðný ÍS var 307 tonn í 24 sjóferðum eða 12,7 tonn í róðri.  Ef þessi tala er reiknuð upp miðað við 6 sjóferðir á viku þá væri vikuafli Guðnýar ÍS 77 tonn.  sem er vægast sagt mjög gott.  Steinbítur af þessum 307 tonnum var 295 tonn.  Guðný ÍS var næst aflahæsti línubátur landsins í apríl 1967.

    Sá næsti í röðinni gerði út ekki langt frá Ísafirði.    Raunar til tekið á Suðureyri.  Þar var bátur sem hét Sif ÍS 500.  Þessi bátur var frekar stór eða 91 brl eikarbátur og er stærsti báturinn af þessum 3 sem eru hérna í yfirlitinu.
 

Sif ÍS

Aflinn hjá Sif ÍS var 296 tonn í 23 sjóferðum eða 12,8 tonn í sjóferð.  Reiknað upp í 6 sjóferðir eða vikuafla þá var vikuafli Sif ÍS 77 tonn.  

    Þriðj báturinn gerði út frá Patreksfirði og þar var hann innan um mikil og stór skip eins og t.d Helga Guðmundsdóttir BA. Jón Þórðarsson BA, Jörund III RE og Náttfara ÞH enn allir þessir bátar réru frá Patreksfirði á vertíð 1967.  Þessi þriðji bátur á alla athygli skilið og meira til því hann var minnsti báturinn af þessum þremur sem hérna eru skoðaðir og varð jafnframt aflahæsti línubáturinn á landinu þennan mánuð.  Báturinn sem hérna um ræðið hét Brimnes RE 333.  Þessi bátur var ekki nema 59 brl að stærð.


Brimnes RE 333.

Aflinn hjá Brimnesi RE var alls 312,4 tonn í einungis 20 sjóferðum eða 15,6 tonn í róðri að meðaltali.  Reiknað upp í 6 sjóferðir eða vikuafla þá var vikuafli Brimnes RE, 94 tonn.
Algert mok og ótrúlega góður afli á ekki stærri báti. 
Það má bæta við að þessi litli bátur var ekki bara aflahæsti línubátur landsins heldur var hann aflahæstur allra báta á svæðinu frá Akranesi og norður um og austur alveg að Fáskrúðsfirði.  Á Akranesi var Sólfari AK með 423 tonn og á Fáskrúðsfirði var Hoffell SU með 337 tonn báðir á netum.

Að lokum´verður að geta þess að myndirnar eru teknar úr bókinni íslensk skip, enn ég ætlaði fyrst að skrifa þennan pistil án mynda enn það er hálftómlegt að skrifa um báta og hafa ekki myndir með sérstakalega þegar ræða á um afla.

Tenglar