Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
03.04.2009 20:36
Vestmannaeyjar í Mars árið 1967
Mars mánuður liðin árið 2009 og mokafli í svo til öll veiðarfæri nema erfið tíð fyrir smábátasjómenn víða um land.
Hvernig var í mars árið 1967. Ég var að klára að skrifa niður tölur frá Vestmannaeyjum og þær eru nokkuð forvitnilegar.
Heildarfjöldi báta sem landaði í Vestmannaeyjum í mars árið 1967 voru alls 74 talsins. í mars árið 2009 til samanburðar þá voru þeir í kringum 20 talsins og eru þá svo til öll stóru skipin talin með enn ekki smábátarnir. Einunigs 4 bátar stunduðu netaveiðar núna í mars ( Gandí VE, Brynjólfur VE, Glófaxi VE og Erlingur SF).
Merkilegt með með mars mánuð fyrir 42 árum síðan hversu margir bátanna stunduðu trollveiðar.
skulu nefndir nokkrir.
Freyja VE sem var 51 brl eikarbátur fékk 185 tonn í 10 sjóferðum og þar af 120 tonn í 6 sjóferðum á tímabilinu 15 mars til 31 mars.
Guðjón Sigurðsson VE 120 sem var 89 brl eikarbátur var með 255 tonn í 12 ferðum og þar af 140 tonn í einungis 5 sjóferðum seinni hluta mars.
Sindri VE 203 sem var 61 brl eikarbátur var með 208 tonn í 16 sjóferðum og þar af 130 tonn í 9 sjóferðum seinni hluta mars.
Hrauney VE 80 sem var 105 brl eikarbátur fékk 264 tonn í 16 sjóferðum og þar af 191 tonn í 10 sjóferðum seinni hluta mars. Hjá öllum þessum ofantöldu bátum þá var ufsi uppistaða afla í mars. og t.d hjá Hrauney VE þá af 191 tonnum þá var 113 tonn ufsi.
Eins og sést þá þessu þá eru þetta ekki stórir bátar og svo til langt því frá hægt að bera´þá saman við þá trollbáta sem núna róa frá Vestmannaeyjum t.d Vestmannaey VE .
og heildaraflinn í mars árið 1967 í eyjum var alls 7700 tonn af bolfiski.
