Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
31.03.2009 09:08
Andri BA
Mynd Þóroddur Sævar Guðlaugsson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Veiðar á Rækju í Arnarfirði voru leyfðar fyrir ári síðan. þá réru Brynjar BA og Höfrungur BA á rækju og var veitt í um 3 mánuði á síðasta vetri. Fyrir vertíðina 2008/2009 þá var gefin út 500 tonna kvóti og skptist hann á nokkra báta. Brynjar BA veiðir kvótann af sjálfum sér, Ásdísi GK, Egil ÍS og Ask GK. Höfrungur BA veiðir sinn kvóta og nýjsta viðbótin er Andri BA 101. Andri BA er búinn að fara í tvær veiðiferðir og búinn að landa samtals 8,3 tonnum í tveimur ferðum.
Andri BA hét áður Kafari KÓ og var eins og nafnið bendir til notaður sem vinnusvæði fyrir hina ýmsu köfunarstarfsemi. Þar á undan hét hann Hugborg SH og landaði´síðast í mars árið 2004 samtals 16,1 tonni, og var þessi síðasti róður bátsins langstærsti í mars það ár, enn báturinn fékk 47 tonn í 11 sjóferðum.
Nafnið Andri BA er nokkuð þekkt í bátasögu Barðastrandasýslu. Andri BA 255 var gerður út frá árinu 1938 til ársins 1959 og var sá bátur 6 brl. Andri BA 100 sem var 70 brl eikarbátur var ´gerður út frá Patreksfirði frá árinu 1961 og til ársins 1969. þar á eftir kom svo Andri BA 100 sem hét áður Viðey RE og var 231 brl stálbátur. Sá bátur var gerður út í um 3 ár fyrst undir nafninu Árni Kristjánsson BA 100 og svo undir nafninu Andri BA.
Skrifað af Gísli.R
