Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

28.01.2009 19:27

Fjölgun netabáta á vertíð.


Mynd Gísli Reynisson

Það er ansi mikið gleðiefni hversu mikil fjölgun er orðin á stórum netabátum sem ætla sér að róa núna á vertíðinni 2009.

Nefna má að Sæljós GK er komið aftur á veiðar og hefur gengið þokkalega.
Gamli Snætindur ÁR var keyptur til Keflavíkur og fékk þar nafnið Búddi KE.  Hefur honum gengið ansi vel og komist uppí tæp 17 tonn í róðri.

Dalaröst GK er búinn að fá litabreytingu og nafnabreytingu og heitir núna Hans Jakop GK og er byrjaður að róa á netum .

Gamli Þorsteinn Gíslasson GK sem hefur róið á netum undanfarin ár er komin á snæfellsnes og er byrjaður undir nafninu Arnar í Hákoti SH.

Oddur Sæmundsson er byrjaður á netum á gamla Narfa VE sem heitir Stafnes KE.

Sægrímur GK er kominn á net enn báturinn hét áður Portland VE.  

og nýjasta viðbótin í netaflotanum er í eigu sömu útgerðar og Sægrímur GK.
nefnilega Kristbjörg HF.  þegar þessar línur eru skrifaðar þá er núna verið að undirbúa Kristbjörgu HF á netin í sandgerði.

Önnur hlið á þessari aukningu er sú að hún tengist Sandgerði ansi mikið, því Sæljós GK, Búddi KE, Hans Jakop GK hafa allir róið frá Sandgerði og spurning um hvar Stafnes KE og Kristbjörg HF munu róa.

Í að minnsta þá má búast við skemmtilegum netalistum núna út vertíðina

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1202
Gestir í dag: 287
Flettingar í gær: 1352
Gestir í gær: 376
Samtals flettingar: 2616021
Samtals gestir: 582089
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 19:20:43

Tenglar