Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 276
Gestir í dag: 98
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370920
Samtals gestir: 530361
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 04:34:52
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
24.01.2009 19:58
Hvaða Togari var hæstur í lok apríl árið 1982??
Undir lok síðasta árs þá kom ég með spurninguna að ofan í setti jafnframt smá könnun í gang varðandi þá spurningu. Sagðist ég myndu koma með svar þegar ég hefði fengið nægan fjöldan í svarinu.

Mynd ljósmyndari ókunnur. tekið af www.haraldarhús.is,
Og ég er orðinn sáttur núna við fjöldann, enn þeir sem kusu voru alls 159 talsins og þið kusuð togarnna í eftirfarandi röð. byrjað neðst og endar á togarnum sem var efstur í niðurstöðu ykkar.
| Sæti | ........Nafn................................... | % |
| 11 | Snorri Sturlusson RE | 1,89 |
| 10 | Sléttbakur EA | 2,52 |
| 9 | Hólmanes SU | 2,52 |
| 8 | Sveinn Jónsson KE | 3,14 |
| 7 | Ólafur Jónsson GK | 3,14 |
| 6 | Kaldbakur EA | 3,14 |
| 5 | Arinbjörn RE | 5,03 |
| 4 | Páll Pálsson ÍS | 6,92 |
| 3 | Bessi ÍS | 6,92 |
| 2 | Breki VE | 19,5 |
| 1 | Guðbjörg ÍS | 30,19 |
Þessi niðurstaða kemur mér ekki á óvart, Mig grunaði strax að þið mynduð setja Guðbjörgu ÍS og Breka VE í efstu sætin, enda í textanum sem setti með fréttinni í byrjun þá sagði ég að Guðbjörg ÍS hefði fengið 235 tonn í sinni fyrstu löndun. Smá blekking þar á ferð.
Kemur mér reyndar á óvart að Kaldbakur EA skuli ekki hafa náð nema í 6 í þessari könnun sem ég gerði.
Niðurstaðan er reyndar allt önnur. og það var einmitt ástæðan afhverju ég setti inn þessa könnun fyrir það fyrsta.
Áður enn ég set inn tölfuna um aflann, þá langar mér að henda fram spurningu um hvaða ísfiskstogari var og hefur verið aflasælastur allra suðurnesjatogara???.
Það koma nokkrir til greina t.d Ólafur Jónsson GK, Aðalvík KE, Bergvík KE og Erlingur GK svo dæmi séu tekinn.
Ég er reyndar á þeirri skoðun að einn sá minnsti Sveinn Jónsson KE hafi verið aflasælastur allra suðurnesjatogara fyrr og síðar. Sveinn Jónsson KE var oftar enn ekki aflahæsti togarinn á suðvesturlandi og var oft inná topp 10 yfir aflahæstu togara landsins.
Getur því verið að minnsti togarinn í þessari litlu könnun minni hafi verið orðinn hæstur í lok apríl árið 1982???
| Sæti | ................Nafn.................. | Afli | Landanir | Meðalafli |
| 11 | Ólafur Jónsson GK | 1359,2 | 10 | 135,9 |
| 10 | Hólmanes SU | 1371,7 | 11 | 124,7 |
| 9 | Páll Pálsson ÍS | 1377,7 | 11 | 125,2 |
| 8 | Arinbjörn RE | 1380,7 | 9 | 153,4 |
| 7 | Guðbjörg ÍS | 1399 | 8 | 174,8 |
| 6 | Bessi ÍS | 1402 | 12 | 116,8 |
| 5 | Sléttbakur EA | 1420 | 7 | 202,8 |
| 4 | Snorri Sturlusson RE | 1484,3 | 6 | 247,3 |
| 3 | Kaldbakur EA | 1518 | 7 | 216,8 |
| 2 | Breki VE | 1542,6 | 10 | 154,2 |
| 1 | Sveinn Jónsson KE | 1582,6 | 11 | 143,8 |
Og jú það var þannig að minnsti togarinn var hæstur. Þetta kom mér mjög á óvart þegar ég reiknaði togaranna og var t.d Sveinn Jónsson KE með 612 tonn í apríl í 4 ferðum sem gerir 153 tonn í löndun.
Þess má svo geta að Snorri Sturlusson RE seldi í þýskalandi í apríl og var með um 310 tonn í einni ferð þar í sölu.
kanski einhverjum líki ekki við hvernig ég set þetta upp í svona hálfgerðum æsifréttastíl, enn ég vona menn fyrirgefi mér það
Mynd ljósmyndari ókunnur. tekið af www.haraldarhús.is,
Skrifað af Gísli.R
