Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
09.01.2009 06:10
Þorsteinn Gíslasson GK
Mynd Ragnar Pálsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Ef litið er til sögu útgerðar í Grindavík þá má sjá að all mörg bátsnöfn hafa verið þar um mjög mörg ár. má þar nefna Hrafn Sveinbjarnarsson GK, Hrafn GK, Geirfugl GK og Farsæll GK svo dæmi séu tekinn. Þorsteinn Gíslasson GK er flestum Grindvíkingum sem og öðrum suðurnesjamönnum ansi vel kunnungt um. Báturinn með því nafni var búinn að vera gerður út síðan 1970, þá fyrst hét hann Þorsteinn Gíslasson KE 31, enn fékk GK 2 árið 1975.
Núna í byrjun árs 2009 þá er fyrsta nafnabreytinginn kominn á bátinn í 38 ár. Heiti báturinn núna Arnar í Hákoti SH 37. Ekki veit ég um hvaðan þetta nafn kemur. Útgerðaraðili er Fjallaskip Ehf, enn Skinney Þinganes keypti kvótann af bátnum og færði hann yfir á Þinganes SF og Steinunni SF. Ekki er Arnar í Hákoti SH byrjaður róðra.
Ekki er Arnar í Hákoti S
Skrifað af Gísli.R
