Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
06.01.2009 19:52
Bátar Desembermánarðins
Lítum yfir desember mánuð.
Dragnótabátur desembers: Valgerður BA, Fór í einungis 9 sjóferðir og fékk mest rúm 20 tonn í
einni sjóferðinni, dugðu þessir 9 róðrar til þess að Valgerður BA var
aflahæst í desember.
Botnvörpungur Desembers: Skafti HF, líklegast einn af stærri kvótalausum skipum sem gerður
er út hérna við land. desember mánuður var einn sá besti hjá
Skafta HF og komst hann í fyrsta skipti inná topp 10 listann sem
kemur í Fiskifréttum.
Netabátur Desembers: Þorleifur EA, Veiddi mjög vel í des og var um tíma í toppbaráttunni í kringum mun stærri báta. komst mest í tæp 14 tonn í róðri. Ufsi var uppistaðan hjá bátnum.
Smábátur yfir 10BT, desembers: Landey SH. var ekki á fyrstu tveimur listunum. kom svo og
klifraði upp listann og endaði í 3 sætinu, langbesti árangur
bátsins frá upphafi.
Smábátur undir 10 BT, desembers: Einar Hálfdáns ÍS, Er hægt að líta frammhjá bátnum.
Báturin fékk reyndar nokkra keppni í byrjun þar sem Ásdís ÍS
var efst framan af. Einar Hálfdáns ÍS var að auki 9
aflahæsti smábátur landsins.
Skrifað af Gísli.R
