Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
03.01.2009 21:37
Góður afli í lok árs.
Mynd Alfons Finnson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Það virðist vera árlegt að nokkrir SH bátar komi með fullfermi að landi í síðustu róðrum sínum ár hvert.
Fyrir ári síðan þá komu t.d Særif SH með 8.2 tonn, Gamla Úlla SH (2055), með 8,6 tonn, Tryggvi Eðvars SH 6,3 tonn og Kristinn SH 14,6 tonn. Allar þessar landanir áttu sér stað á bilinu 28 til 30 desember árið 2007.
Núna undir lok árs 2008 þá er sama sagan. Nokkrir SH bátar komu með ansi stóra róðra.
t.d Tryggvi Eðvars SH 9,5 tonn í einni ferð.
Kvika SH 5,6 tonn.
Guðbjartur SH 8,7 tonn.
Kristinn SH 10,3 tonn
og Særif SH sem núna var langaflahæst og með þessum róðri sínum þá varð báturinn með stærstan róður allra smábátar í desember. enn báturinn var með 14,8 tonn í einni ferð.
Hvort þetta gefi fyrirheit um mokafla hjá SH bátunum á komandi vertíð er ekki gott að segja um, enn góður endaleikur hjá bátunum og kom t.d Særif SH uppí 9 sætið á desember listanum.
Skrifað af Gísli.R
