Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 263
Gestir í dag: 97
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370907
Samtals gestir: 530360
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 04:14:08
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
04.01.2009 05:05
Í lok Apríl árið 1982
4.1.2009.Mig grunaði nú reyndar alltaf að giskað yrði mest á guðbjörgu ÍS , Breka VE og Kaldbak EA.
enn allt þetta er kolrangt.
og það er nú kanski ástæðan fyrir því afhverju ég set þessa litlu könnun eða getraun fram því svarið kom mér mjög mikið á óvart.
niðurstaðan kemur eftir 2 daga
Núna er ég kominn í árið 1982, og ég ætla að koma með smá könnun um ísfiskstogaranna það ár.
Spurninginn er þessi . Hvaða ísfiskstogari var orðinn aflahæsti togari landsins í lok apríl árið 1982???.
Þeir togarar sem eru tilnefndir eiga það allir sameiginlegt að allir voru þeir komnir með meira enn 1300 tonna afla í lok apríl það ár.
Togarnir sem eru tilnefndir raðast eftir heimahöfnum og byrjar upptalninginn í Vestmannaeyjum og fer svo vestur um og enda á austfjörðum.
Engar aflatölur fylgja með núna, enn ég mun koma með rétt svar þegar líður á næsta ár, eða þegar kominn er ágætur fjöldi í svörun á könnunni.
Togarnir eru eftirfarandi:
Breki VE, Hét fyrst Guðmundur Jónsson GK. Þarna var Breki VE gerður út frá Vestmannaeyjum og var búinn að landa 10 landanir.
Sveinn Jónsson KE. Hét þar áður Dagstjarnan KE. var einn af þessum minni togurum enn hann var um 299 brl. á meðan Breki VE var um 459 brl. búinn að landa 11 sinnum, minnsti togarinn í þessari könnun
Ólafur Jónsson GK. Var í eigu Miðnes HF sem átti líka Svein Jónsson KE, Ólafur Jónsson GK var þó mun stærri heldur enn Sveinn Jónsson KE. Var búinn að landa 10 landanir.
Jón Baldvinsson RE. 493 brl togari gerði út frá Reykjavík. var búinn að landa 8 landanir.
Snorri Sturlusson RE. Einn af þeim stóru. var 969 brl og gerður út frá Reykjavík var búinn að landa 6 landanir, þar af sigla einu sinni með 300 tonn.
Arinbjörn RE. Íslensk smíðaður togari, 378 brl, og einnig gerður út frá Reykjavík. var búinn að landa 9 landanir
Guðbjörg ÍS , Skipið heitir í dag Gnúpur GK, þarna var Guðbjörgin ÍS 484 brl, og var búinn að fara í 8 landanir. Fyrsta löndun togarans í janúar það ár var uppá alls 237 tonn.
Páll Pálsson ÍS. Þessi togari er enn gerður út og er einn af japanstogurunum. þarna var hann 462 brl og búinn að landa 11 landanir.
Bessi ÍS. enn eitt aflaskipið að vestan, núna frá Súðavík Bessi ÍS var 407 brl og var búinn að landa 12 landanir.
Harðbakur EA. Annar stór , því Harðbakur EA var 941 brl , og var búinn að landa 8 landanir. Frysta löndun togarans í janúar var ekki nema 67 tonn.
Kaldbakur EA. Stysturskip Harðbaks EA og bæði þessi skip urðu mikil aflaskip. Kaldbakur EA var búinn að landa 7 landanir.
Sléttbakur EA. Einn stór líka þó ekki eins stór og Harðbakur EA og Kaldbakur EA, Sléttbakur EA var 781 brl, og hét síðast Akureyrin EA. búinn að landa 7 landanir.
Hólmanes SU. Eini austfjarðartogarinn, 451 brl og búinn að landa 11 landanir.
Og svo að lokum að sjálsögðu er í lagi að menn komi með hugmyndir sínar um hvernig hugsanlega togarnir hafa raðast upp ef svo ber undir.
Skrifað af Gísli.R
