Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

26.11.2010 15:01

Mars árið 1981.


Það er nokkuð mikið um að nýir lesendur eru að koma núna á síðuna og ætla ég í því tilefni að birta hérna aftur mjög stóra grein sem ég birti fyrir tveim árum síðan.  hún fjallaði um gríðarlega góða veiði sem fram fór í Mars árið 1981.  Lesendur síðunar hefa tekið eftir að ég hef ekki verið mikið að koma með nýtt efni í þennan flokk sem heitir Gömul tíð, enn hún er að mestu um gamlar aflatölur aftur í tímann. 
Þetta er nokkuð löng grein og vona ég að ykkur líki við hana þótt hún sé endurbirt.
kv
Gísli R


Ég ætla aðeins að breyta útaf vananum gagnvart aflatölum aftur í tímann.
ég hef aðeins verið að fara útí t.d árið 1965 og 1966.  núna förum við aðeins nær nútímanum því ég ætla að líta aðeins á árið 1981.  
líklegast ættu einhverju að hafa verið á sjó á þessum tíma sem eru kanski enn á sjó eða eru þá hættir.

Lítum aðeins á mars árið 1981 og þá er einblínt á netabátanna í þeim mánuði.  
alger mokveiði var í mars árið 1981 og mjög margir bátar komust yfir 400 tonn í þessum mánuði.  vel gaf til sjósóknar og róið var mjög stíft.
kanski smá ábending, enn framundan er mjög mikil lesning fyrir þá sem ætla sér að hjakka sig í gegnum allan textann alla leið niður.  væri gaman ef þeir sem lesa alla leið myndu kvitta , því þetta er lengsta færslan sem ég hef sett inn hérna á síðuna.

Vestmannaeyjar:
Árni í Görðum VE landaði alls 474 tonnum í 27 ferðum eða um 18 tonnum í róðri.
Bjarnarey VE gerði betur og var með 538 tonn í 13 ferðum eða 41 tonn í róðri.
Gjafar VE gerði betur enn þeir tveir því Gjafar VE var með 579 tonn í 13 ferðum eða 45 tonn í róðri að meðaltali.
Valdimar Sveinsson VE var með 531 tonn í 26 ferðum eða um 20 tonn í róðri.
Allir bátarnir að ofan eru stálbátar, og rétt er að geta að þarna eru ekki allir bátar taldir upp sem yfir 400 tonnin náðu þar.og það sama á við um Þorlákshöfn.

Þorlákshöfn.
Þar var heldur betur fjör.
Arnar ÁR fiskaði meira heldur enn Hvanney SF gerði núna í mars á árið 2008, því Arnar ÁR var með 644 tonn í 13 ferðum eða um 50 tonn í löndun.
Friðrik Sigurðsson ÁR, eiginlega ætti að gera sérfrétt um hann enn báturinn fékk alls 793 tonn í 15 ferðum eða 53 tonn í róðri.
Guðfinna Steinsdóttir ÁR var með 593 tonn í 13 ferðum eða 46 tonn í róðri.
Höfrungur III ÁR var með svipaðan afla og Guðfinna Steinsdóttir ÁR enn Höfrungur III ÁR var með 597 tonn í 14 ferðum eða 43 tonn í róðri., einnig náðu Gissur ÁR og Sæunn Sæmundsdóttir ÁR báðir yfir 500 tonna afla.
bátarnir að ofan eru allt frekar stórir stálbátar.  lítum aðeins á minni bát.
Snætindur ÁR sem núna heitir Búddi KE var með 313 tonn í 27 tonn eða um 12 tonn í róðri.

Grindavík:
Hrafn Sveinbjarnarsson III GK var með 404 tonn í 26 ferðum eða 16 tonn í róðri.
Kópur GK var með 407 tonn í 25 ferðum eða 16 tonn í róðri.
Vörður ÞH sem varð hæstur Grindavíkurbátann með 516 tonn í 26 ferðum eða um 26 tonn í róðri.
hérna koma svo nokkrir eikarbátar.
Máni GK var með 223 tonn í 24 ferðum eða 9.3 tonn í róðri.
Vörðunes GK var með 226 tonn í 24 ferðum eða 9.4 tonn í róðri.

Sandgerði:
Þar var ansi mikill fjöldi báta og þar var t.d
Arney KE með 293 tonn í 22 ferðum eða 13 tonn í róðri.
Bergþór KE var með 288 tonn í 23 ferðum eða 12.5 tonn í róðri.
Hafnarberg RE sem núna í dag heitir Dúa SH, var með 254 tonn í 26 ferðum eða 9.8 tonn í róðri.
Sæljómi GK sem er 11 brl eikarbátur var með 99.9 tonn í 18 ferðum eða 5.5 tonn í róðri.
Sandgerðingur GK var með 261 tonn í 26 ferðum eða um 10 tonn í róðri.


Keflavík:
Gunnar Hámundarsson GK sem er eikarbátar 229 tonn í 25 ferðum eða 9.1 tonn í róðri.
Jóhannes Jónsson KE sem einnig er eikarbátur231 tonn í 20 ferðum eða 11.5 tonn í róðri.
Pétur Ingi KE sem var stálbátur, var með 347 tonn í 22 ferðum eða um 16 tonn í róðri.

Hafnarfjörður og Reykjavík:
Sandafell GK sem landaði í hafnarfirði var með 323 tonn í 21 ferð eða rúm 15 tonn í róðri.
Ásþór RE sem landaði i Reykjavík var með 416 tonn í 24 ferðum eða 17 tonn í róðri.
Aðalbjörg RE sem er eikarbátur og er núna á árbæjarsafni var með 249 tonn í 22 ferðum eða rúm 11 tonn í róðri.

Akranes:
þar voru nokkrir netabátar og fiskuðu þeir allir mjög vel. eins og t.d
Haraldur AK sem var með 422 tonn í 28 ferðum eða rúm 15 tonn í róðri
Grótta AK sem var aflahæst með 474 tonn í 27 ferðum eða tæp 18 tonn í róðri.
Sólfari AK var með 449 tonn í 27 ferðum eða tæp 17 tonn í róðri
Reynir AK var með 452 tonn í 27 ferðum eða tæp 17 tonn í róðri.

Rif:
þar var t.d
Tjaldur SH með 472 tonn í 27 ferðum eða 17.5 tonn í róðri.
Skarðsvík SH var með 404 tonn í 9 ferðum eða 45 tonn í róðri.  Þarna var Skarðsvík SH að klára loðnuúthald og fór beint á netin.
Rifsnes SH var með 462 tonn í 25 ferðum eða 18.5 tonn í róðri.
svo voru Hamar SH (430 tonn) og Brimnes SH ( 448 tonn) einnig á Rifi sem yfir 400 tonn komust.

Ólafsvík:
Garðar II SH var með 422 tonn í 27 ferðum eða tæp 16 tonn í róðri.
Halldór Jónsson SH sem var eikarbátur var með 306 tonn í 26 ferðum eða 12 tonn í róðri.
Gunnar Bjarnarsson SH var með 466 tonn í 26 ferðum eða 18 tonn í róðri.
Sveinbjörn Jakopsson SH sem er eikarbátur var með 276 tonn í 28 ferðum eða um 10 tonn í róðri.

Grundarfjörður:
Farsæll SH var með 369.9 tonn í 27 ferðum eða um 14 tonn í róðri.
Grundfirðingur SH var með 327 tonn í 26 ferðum eða um 13 tonn í róðri.

Stykkishólmur:
Þórsnes II SH var með 384 tonn í 26 ferðum eða um 15 tonn í róðri
Sif SH var með 337 tonn í 26 ferðum eða um 13 tonn í róðri.
Þórsnes SH var með 376 tonn í 27 ferðum eða um 14 tonn í róðri.

á svæðinu frá Patreksfirði og norður til Djúpavogs má nefna t.d

Pálmi BA á patreksfirði var með 331 tonn í 15 ferðum.

Ólafur Friðbertsson ÍS landaði á suðureyri og var með 268 tonn í 21 ferð.

Páll Helgi ÍS sem hefur verið mikið skrifað um á síðunni var með 159 tonn í 25 ferðum landað á bolungarvík, sem gerir um 6 tonn að meðaltali í róðri.

Haraldur EA landaði á dalvík og var með 140 tonn, róðrafjöldi ekki uppgefin

Rita NS landaði á vopnafirði og var með 201 tonn í 17 ferðum

Hvanney SF var á Hornafirði og var með 326 tonni 23 ferðum.

Freyr SF var einnig á hornafirði og var með 313 tonn í 23 ferðum.

Eins og sést á þessu mjög svo langa yfirliti þá var afli víðast hvar ansi góður, og þá sérstaklega í Þorlákshöfn og að ná tæpum 800 tonnum í einum mánuði er algert met.




Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1202
Gestir í dag: 287
Flettingar í gær: 1352
Gestir í gær: 376
Samtals flettingar: 2616021
Samtals gestir: 582089
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 19:20:43

Tenglar