Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
17.12.2008 10:47
Fall er Fararheill
Mynd Gísli Reynisson
Hvað eiga Úlla SH og Grímsnes GK sameiginlegt???. reynum að finna það út. Grímsnes GK er stálbátur og miklu stærri heldur enn Úlla SH sem er úr plasti. í raun eiga þeir ekkert sameiginlegt.
eða hvað. jú þeir eiga nefnilega eitt sameiginlegt. báðir lentu í skakkaföllum í lok síðasta mánaðar og báðir komu síðan tvíelfdir til baka eftir lagfæringar.
Grímsnes GK strandaði og var frá veiðum síðustu daganna í nóvember, enn hóf veiðar aftur í des og gerði sér þá lítið fyrir og kom með 70 tonn að landi úr einni ferð. enda er Grímsnes GK komið í annað sætið á netalistanum.
í Nóvember þá voru nokkrar kannanir í gangi og þar á meðal um það hvort að Úlla SH næði inná listann, Úlla SH bilaði undir lok mánarðins enn náði þó í sæti númer 37 í nóvember. fyrir nokkru þá voru settir nýjir spíssar í Úllu SH og eins og Davíð orðar það ansi skemmtilega hér á síðunni " og breiðarfjörðurinn ekki lengur í þoku af mínum völdum".
Þessir nýju spíssar hafa ekki bara slökkt í þokunni heldur hefur báturinn mokfiskað núna í síðustu tveimur ferðum. var báturinn með tæp 16 tonn í tveimur ferðum, fyrst rúm 8 tonn og síðan um 7.7 tonn. núna á nýjasta listanum sem er númer 7 í röðinni þá er báturinn sá bátur sem stekkur lang mest upp listann fer upp um alls 35 sæti milli lista.
Einn málsháttur kemur upp í huga mér gagnvart þessum tveimur bátum. Fall er fararheill.
Skrifað af Gísli.R
