Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

27.11.2008 19:27

Árið 1966

Hversu margir lesendur síðunnar voru fæddir fyrir árið 1966, eða þá voru á sjó það ár???.  gaman að velta því fyrir sér.
Allavega þá er ég búinn að skrá hjá mér allt í sambandi við árið 1966, og ætla ég að renna aðeins yfir það hérna í smá yfirliti.

Þær tölur sem ég er með núna ná yfir allan flotan nema síld og loðnu.

Helstu tölur eru eftirfarandi:

Dragnót:  Alls 14611 tonna afli og alls 125 bátar skráðir á dragnót, af þeim þá náðu 4 bátar að veiða yfir 400 tonnin.  Sigurfari SH var með 415 tonn,  Geysir SH með 439 tonn,  Glaður KE með 487 tonn, og Baldur KE 512 tonn.    Bæði Baldur KE og Sigurfari SH fóru yfir 150 tonna afla í ágúst það ár.

Rækja:  alls 1778 tonn.  allt innanfjarðarækja.  Örn ÍS var aflahæstur með 90 tonn í 114 ferðum.

Humar :  Alls skráður afli miðað við óslitið 3601 tonn, og fjöldi báta 123 talsins.  tveir bátar náðu yfir 30 tonna afla miðað við slitið.  Ver SF og Dagný SF.  einungis munaði 112 kílóum á milli þessara tveggja báta sem báðir fóru 28 sjóferðir.

Togarar:  Þeir voru alls 31 talsins og afli þeirra tæp 58 þúsund tonn samtals.  

Bátar:  Þarna eru samankomnir allir bátar sem lönduðu einhverjum afla árið 1966.  og er aflinn fyrir utan vertíð talin í þessum flokki.  heildarfjöldibáta var alls 1114 bátar og aflinn 60622 tonn.  Reynar voru þónokkrir fjöldi báta sem réru án nafns og var þá gefið upp nafn útgerðamannsins  voru þeir háttí 100 talsins sem réru þannig.

Vertíð:  Alltaf mesta fjörið að reikna vertíðina.  heildarfjöldi báta á vertíð var alls 500 og afli þeirra tæp 200 þúsund tonn.    af þeim þá náðu 15 bátar yfir 1000 tonnin.  241 bátur náði yfir 400 tonna afla sem er það viðmið sem ég nota um lista yfir vertíðarbátanna.  Skarðsvík SH varð aflahæsti báturinn á vertíð 1966 með tæp 1240 tonn.  

heildarafli fyrir utan síld og loðnu er því 338 þúsund tonn.  og eins og sést þá er langmestur hluti þess afla fenginn á vetrarvertíðinni.

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1159
Gestir í dag: 281
Flettingar í gær: 1352
Gestir í gær: 376
Samtals flettingar: 2615978
Samtals gestir: 582083
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 18:59:42

Tenglar