Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
02.12.2008 08:46
Oddur Kaupir Narfa VE
Færi fréttina um Odd og Narfa VE undir könnunina sem er hérna á síðunni til þess að menn geti betur tengt umræðuna sem er hérna undir fréttinni, við spurninguna í könnunni.
Myndin af Narfa VE. Gísli Hjartarsson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Þá er það komið í gegn. Oddur Sæmundsson netakóngur með meiru hefur keypt Narfa VE. Narfi VE hét fyrst Bára SU og var þá smíðaður fyrir útgerðamannin Árna Stefánsson. Árni lést þann 21.október árið 1980. Árni átti þar á undan bát sem hét Stefán Árnasson SU. Réri Árni bæði á Stefáni Árnasyni SU sem og á Báru SU alltaf á vertíð frá Vestmannaeyjum.
Oddur hefur nokkuð látið til sín taka núna í ár þótt að hann hafi ekki átt neinn bát til að róa á. Ufsaveiðimokið sem hefur verið hjá Erling KE hefur að hluta verið Oddi að þakka. enda var hann með bátinn um tíma. Myndin af Magga Jóns KE er þegar hann kom að landi með 20 tonn á vertíðnni núna í vetur. Oddur var einmitt með bátinn í þessum túr, enn Oddur var með Magga Jóns KE að hluta á vertíðinni 2008.
Það verður mikill fengur að fá Odd aftur í slaginn með netabátunum og nú er bara spurning hvort sé ekki hægt að kalla fram hinn netakónginn sem var á sínum tíma oft í harðri keppni við Odd um aflasætið. að sjálfsögðu er ég að tala þarna um Grétar Mar Jónsson sem lengst af var með Sæborgu RE og seinna meir með Berg Vigfús GK.
