Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
19.11.2008 20:51
smá af söfnun
NEi ekki beint söfnun til styrktar mér, heheh
heldur annarsskonar talnasöfnun, því núna var ég að klára að skrifa árið 1966,( mun fjalla nánar um það ár seinna )og núna er ég byrjaður á árinu 1979. fer ansi mörg ár fram í tímann. Legg reyndar aðaláherlsunar á togaranna það ár enn tek með líka nokkra báta.
og hvernig byrjar árið 1979.
jú bara nokkuð vel. kem með nokkur dæmi
Bjarnarey VE silgdi einu sinni til þýskalands og var með 68 tonn.
Sigurbára VE var með 92.3 tonn í þremur ferðum í troll landað í Vestmanneyjum.
Jón Á Hofi ÁR réri á netum frá Þorlákshöfn og var með 150 tonn í 8 ferðum.
Reynir GK var á trolli frá Sandgerði og var með 82.2 tonn í 10 ferðum.
Frigg BA var á línu frá Tálknafirði og var með 144.3 tonn í 20 ferðum
og af togurnum þá má nefna að Kaldbakur EA ( sem núna heitir Sólbakur EA ) var með 432.9 tonn í 3 ferðum eða 144 tonn í löndun.
og Klakkur VE var með 239.1 tonn í tveimur ferðum landað í Vestmannaeyjum.
Þetta er bara smá brot af því sem ég er búinn að skrifa. Allavega veit ég það að nokkrir netabátar komust yfir 500 tonn á mánuði vertíðina 1979.
Skrifað af Gísli.R
