Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
14.11.2008 09:09
Kafbáturinn Friðrik Sigurðsson ÁR
Mynd Gísli Reynisson
Eins og menn gátu fylgst með hérna á síðuni þá var ansi góð ufsaveiði hjá bæði Erling KE og Friðriki Sigurðssyni ÁR. Friðrik Sigurðsson ÁR var ekki búinn að koma með neina löndun inná listann, enn það breyttist nú.
Báturinn gerði sér lítið fyrir og kom með tæp 101 tonn að landi og af því var ufsi rúm 97 tonn.
Að netabátur nái yfir 100 tonn í löndun er mjög sjaldgjæft, enn það eru til dæmi um 100 tonna róðra á einum degi á vetrarvertíð, enn þessi róður er eftir útilegu, enn engu að síður svakalegur afli.
Þetta toppar alla róðranna sem Erling KE gerði í október. .
Myndin hérna að ofan sýnir bátinn tómann við bryggju, enn ég á ekki mynd af bátnum með þennan mikla afla enn það er spurning hversu mikið báturinn hefur sigið, hvort að hvíta línan hafi náð niður í sjó??.
