Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
03.11.2008 20:20
Bátar mánaðarins
Mynd Gísli Reynisson
Ég er að hugsa um að velja einn bát í hverjum listaflokki fyrir sig, og kalla hann bát mánarðins. Myndi þá vera valin Netabátur mánaðarins, Krókabátur mánarðins og sá flokkur yrði tvískiptur, annars vegar bátar yfir 10BT og bátar undir 10BT. Botnvörpungur mánaðarins og Dragnótabátur mánaðarins.
Eins og staðan er núna þá mun ég einn velja þessi skip, enn ykkur er að sjálfsögðu frjálst að koma með hugmyndir( og jafnvel ef menn vilja þá væri hægt að gera eitthvað meira úr því.). Það er reyndar eitt, ef menn vilja koma með hugmyndir um báta þá væri sniðugast að rökstyðja það líka.
Við mat á valinu er ekki endilega horft á þann sem er efstur, þó svo að það spili ansi stórt hlutverk inní. Annað sem hefur líka áhrif er t.d fiskaði báturinn eitthvað óvænt meira heldur enn aðrir yfir eitthvað ákveðið tímabil og svo framvegis. Ég hef nú þegar myndað mér skoðun á því varðandi krókabátanna sem og dragnótabátanna.
Þessi liður er hugsaður sem fastur liður í lok hvers mánaðar.
Skrifað af Gísli.R
