Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370780
Samtals gestir: 530320
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 02:17:59

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

03.11.2008 08:59

Mokveiði hjá Pál Helga ÍS, smá viðbót


Mynd Ingólfur Þorleifsson www.123.is/golli/.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Núna undir lok mánaðirns þegar ég er að reikna dragnótabátanna þá er ansi lítið að ske.  afli hjá bátnum er orðinn ansi dapur og fátt sem gleður augað.  Í dragnótaflotanum núna eru nú ekki margir eikarbátar alls 3 talsins.  Sæborg ÞH sem rær frá Húsavík, Stefán Rögnvaldsson HU sem er ´buinn að gera það mjög gott á listanum og Páll Helgi ÍS.  Áður hef ég skrifað um Pál Helga ÍS hérna á síðunni og gerði ég það þann 11. nóvember árið 2007 sem og 5. desember sama ár.

    Fram að 26 okt þá var Páll Helgi ÍS búinn að vera í ansi rólegu fiskeríi.  komist rétt í tæp 3 tonn.  núna undir lokin þá bregður svo við að Páll Helgi ÍS er tvisvar búinn að landa yfir 10 tonnum í einni ferð.  Þessi góði afli byrjaði þann 26. þá kom báturinn með tæp 4,3 tonn.
deginum eftir kom báturinn með 11,6 tonn og var það þorsku í mestum hluta.
þann 28 var bátuinn með 5,5 tonn , allt þorskur.
og þann 29 kemur stærsti róðurinn.  12,1 tonn og eins og í hinum róðrunum þá var uppistaðan þorskur.  Alls er því báturinn búinn að fá 33,6 tonn í einungis 4 ferðum. 

Athygli vekur að þorskur er uppistaðan í aflanum hjá bátnum enn hingað til hafa dragnótabátarnir á vestfjörðum verið að mestu í ýsunni.  Enn þarna ræður kvótastaðan miklu um.  Páll Helgi ÍS er með þónokkurn kvóta.  Og að listanum sem kemur á síðuna núna í dag, þá er Páll Helgi ÍS hástökkvarinn enn báturinn fer uppí sæti númer 29 úr sæti númer 46.
Og að lokum þá hefði verið flott ef einhver hefði tekið mynd af bátnum koma að landi með 12 tonn.  Ég er nokkuð viss um að báturinn lítur mjög vel út með fullfermi.

Núna hefur bæst við einn róður sem ja toppar alla aðra.  Því báturinn landaði 14,5 tonnum þann 30. og var þorskur eins og hina róðranna uppistaða afla.  Er því báturinn búinn að fá 48,1 tonn í 5 ferðum.  og enginn mynd ansans.

 

Tenglar