Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
29.10.2008 11:12
Furðuleg Bátsnöfn
Furðuleg bátsnöfn.
.
Í gegnum tíðina þá hafa oft komið fram bátsnöfn sem er vægast sagt mjög furðuleg og skrýtin.
´Líklegast eitt þekksta dæmið um nöfn sem fengu mikla athygli er þegar Clinton GK og Monika GK hófu róðra frá sama staðnum. Enn þetta var eftir að persónur með sömu nöfnum fengu heimsathygli útaf smá ævintýri hjá þeim báðum. Núna í dag eru nokkuð kanski ekki beint furðuleg nöfn, enn nöfn engu að síður sem eru nokkuð öðruvísi.
Strax kemur upp í hugan Hróðgeir Hvíti NS. Snjólfur ÍS er nokkuð tormelt nafn, og það er eins og það sé smá húmor í nafninu Pési Halti ÍS.
Öll þessi nöfn hafa líklegast einhverja merkingu fyrir eigandann. Í aflaskýrslum sem ég er að faraí gegnum árið 1966 rakst ég á eitt nafn sem að mínu mati er eitt það allra furðulegasta sem ég hef séð. Þarna er bátur sem réri frá Raufarhöfn og hét því skemmtilega nafni Goggur Glænefur ÞH. ég þurfi að lesa mig nokkuð vel í gegnum bunkann til að vera viss um að þarna væri ekki stafsetningarvilla. Um þennan bát veit ég ekki neitt. í bókinni Íslensk skip er ekkert um bátinn. Ég efast um að sjálfur Emil Páll sem er manna fróðastur um sögu báta hérna á landinu viti eitthvað um þennan bát með þessu furðulega nafni.
Eru einhver önnur furðuleg bátsnöfn sem mönnum dettur í hug sem menn vita til ??

Skrifað af Gísli.R