Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
22.10.2008 10:14
Mokveiði á ufsanum.
Mynd Gísli Reynisson
Það er búið að vera þvílíkt mok á ufsanum´hjá stóru netabátunum. Einungis 3 bátar hafa eitthvað að ráði verið á ufsaveiðum, og var t.d Grímsnes GK með tæp 37 tonn í einni löndun, og Friðrik Sigurðsson ÁR kom með 71 tonn.
Erling KE hefur má segja slegið hvert metið, því báturinn er einungis búinn að landa fjórum sinnum í októbert enn er samt kominn með 294 tonna afla. eða sem svarar 73 tonnum í róðri.
Róðralega þá voru landanir hjá Erling KE eftirfarandi:
6.okt: landaði 80,1 tonni og af því var ufsi 72,1 tonn.
9.okt: Landaði 51,9 tonni og af því var ufsi 46,8 tonn
16.okt Landaði 87,7 tonnum og af því var ufsi 84,9 tonn
19.okt Landaði 74,1 tonni og af því var ufsi 70,1 tonn.
semsé tæp 274 tonn af ufsa í 4 ferðum.
Skrifað af Gísli.R
