Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
17.10.2008 17:19
Húsavík árið 1965
Eins og sumir hafa tekið eftir þá er ég að vinna í söfnun aflatalna aftur í tímann. Núna er ég í árinu 1965 og er að vera búinn með það. Skjölin sem ég er vinn í eru mjög stór. Eitt blað er 55 cm á lengd og 36 cm á hæð. Ansi stórt. hvert blað er með nafni fiskvinnslunar og alla þá bátar sem þaðan landa. Á hverju blaði er annaðhvort miðað við einn mánuð í einu eða þá mánuðunim skipt í tvö tímabil og er þá miðað við 15 hvers mánaðar.
Einn bær eða réttara sagt eitt fyritæki hefur alltaf verið ansi stórt verkefni fyrir mig að fara í gegnum. og er það Fiskiðjusamlag Húsavíkur sem þá var. árið 1965 þá var verkefnið sem beið mín mjög stórt því þessi stóru blöð voru alls tæp 40 talsins, og það tók mig rúma 3 klukkutíma að fara í gegnum þennan mikla bunka. Blöðin frá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur voru öll með þeim mestu og þykkustu af öllum fyrirtækjum á landinu.
Ansi margir bátar lönduðu hjá Fiskiðjusamlaginu þetta ár, og voru þeir eftirfarandi:
Þeir bátar sem lönduðu afla á bilinu 0 til 50 tonn voru eftirfarandi:
Anna ÞH
Ársæll ÞH
Baldvin ÞH
Bára ÞH
Brandur ÞH
Drífa ÞH
Dvergur ÞH
Farsæll ÞH
Fram ÞH
Gosi ÞH
Guðrún ÞH
Helgi ÞH
Hafliði ÞH
Júlli ÞH
Kópur ÞH
Óli ÞH
Kristján ÞH
Mari ÞH
Mökkur ÞH
Öngull RE. Landaði á húsavík allt sumarið á færum
Óskar ÞH
Otur ÞH
Sæunn ÞH
Sigurpáll ÞH
Sindri ÞH
Sporður ÞH
Þráinn ÞH
Tjaldur ÞH
Ver AK . Réri allt árið frá húsavík, bæði á línu og færi.
Þengill ÞH
Héðinn ÞH
Veiðibjalla ÞH
Björn ÞH
Björg GK
Jón Hannson ÓF. landaði einu sinni 0.5 tonni á færum
Gustur ÞH
Hrönn EA. landaði einu sinni 2.5 tonni á færum
Bátar sem voru með 50 til 100 tonn voru eftirfarandi:
Hrói ÞH, var með 75 tonn í 104 sjóferðum
Kristján ÞH var með 56 tonn í 103 ferðum
Sæfari ÞH var með 69 tonn í 100 ferðum
Vilborg ÞH var með 61 tonn í 124 ferðum
Bátar sem voru með 100 tonn til 200 tonn voru eftirfarandi:
Andvari ÞH
Svanur ÞH. báðir þessir bátar lönduðu öllum afla sínum hjá Fiskiðjusamlaginu nema þorski sem var landað hjá öðru fyrirtæki.
Bátar yfir 200 tonn voru eftirfarandi.
Fanney ÞH. Báturinn var jafnframt aflahæsti húsavíkurbáturinn sem landaði hjá Fiskiðjusamlaginu. var báturinn með 455 tonn í 127 ferðum. mest tæp 18 tonn í róðri. Stundaði báturinn línu, neta, dragnót og nótaveiðar. Náði báturinn t.d því að fiska 105 tonn í 10 ferðum í júlí það ár.
Freyja ÞH var með 363 tonn í 90 ferðum mest tæp 16 tonn í roðri
Grímur ÞH var með 274 tonn í 122 ferðum. Nokkuð merkilegt með Grím ÞH. Enn hann var eini báturinn sem réri með línu allt árið.
Kristbjörg ÞH var með 299 tonn í 87 ferðum.
Sæborg ÞH var með 275 tonn í 97 ferðum.
.Fanney ÞH, Sæborg ÞH, Freyja ÞH, Kristbjörg ÞH, Andvari ÞH og Svanur ÞH stunduðu allir dragnótaveiðar og er sá afli ekki meðtalinn í aflayfirlitinu að ofan.
Eins og sést á þessu yfirliti þá er þarna um ansi mikinn fjölda báta og alls eru þetta ansi margir bátar, eða alls 47 bátar, Heildarafli sem var landaður hjá Fiskiðjusamlaginu árið 1965 var því 3134 tonn af bolfiski.
Þetta er ansi mikil lesning, og kanski ekki allir sem hafa áhuga á þessu ári 1965, enn þetta er ágætis tilbreyting frá listunum sem eru á fullu hérna á síðunni.
Skrifað af Gísli.R
