Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1992
Gestir í dag: 425
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364142
Samtals gestir: 529045
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 21:23:27

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

01.10.2008 09:43

Troll, togari eða hvað???

það má segja að frá því þessir listar sem eru á síðuni komust í gang, eins og t.d krókalistinn og dragnótalistnn.  Þá hef ég fengið mjög margar óskir þess efnis að ég fylgist með trollbátnum og ísfisktogunum á lista eins og er á síðunni.  Það er nú lítið mál að gera það.  enn spurningn er sú á bara að fylgjast með TROLL bátunum???.  afhverju spyr ég svona.  Jú núna eru t.d nokkrir trollbátar sem flokkast með 3 mílna bátar, enn eru að fiska jafn við þá sem eru 4 mílna bátar, enn þeir bátar flokkast sem togarar. 
Í júlí listanum hjá trollbátnum og togurnum sem birtist í Fiskifréttum þá ákvað ég að breyta aðeins til, og setti nokkur skip sem flokkast sem trollbátar, setti þá í togaraflokkinn.  Og byggði það meðal annars á burðargetu skipanna. Og það vakti ekki beint góða lukku.  Einn útgerðarmaðurinn hafði samband við mig og lýsti mikilli óánægju með þessa flokkun, eins og hann sagði "Vertu bara ekkert að velta þér upp úr þessu".  
 Enn t.d Vestmanney VE og Bergey VE hafa komið með um og yfir 90 tonn í túr.  og það sama á við um t.d Gullberg VE, Berg VE, Berglínu GK og fleiri sem flokkast sem 4 mílna bátar enn eru togarar.  Eitt dæmi um þetta eru gömlu trollbátarnir eins og t.d Oddgeir EA, Hamar SH, Óskar RE og Sigurður Ólafsson SF.  allir þessir bátar eru lengri enn 30 metrar og þar af leiðandi ´þurfa að fara út fyrir 4 mílurnar. 
Og fyrst þessi flokkun er svona ruglingsleg þá hef ég verð að velta fyrir hvernig best sé að fylgjast með þessum botnvörpuskipum. 
Og mér datt því í hug að skella saman 3 mílna, 4 mílna og ísfiskstogurum alla saman í einn lista.  Þetta eru nú ekki margir bátar sem eru á þessum veiðum , kanski 50 talsins ef allt er talið saman. 
svona áður enn ég tek ákvörðun um þetta þá þætti mér gaman að vita skoðanir manna að hafa öll skipin saman í flokki. 

Tenglar