Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
10.10.2008 07:47
Markús á Júpiter RE árið 1965.
Hérna neðst í þessum pistli mínum þá endaði ég á því að koma með þá spunringu um hvaða togari hefði verið þriðji aflahæsti togari landsins árið 1965.
Það voru nú ekki margar giskanir, enda kanski ekki margir notendur síðunnar sem þekkja eitthvað til togaranna árið 1965.
Enn það var t.d giskað á Mars RE og Þormóð Goða RE. Enn hvorugt er rétt, og reyndar var togarinn sem lenti í þriðja sætinu ekki einu sinni gerður út frá höfnum sunnanlands.
´Þá eru nú ekki margir togarastaðir eftir. þeir stærstu fyrir utan sunnanhafnirnar voru t.d Siglufjörður og Akureyri. Á Siglufirði var mikið aflaskip sem hét Hafliði SI. Enn á Akureyri þar voru líka mikil aflaskip og eitt af þeim varð einmitt þriðji aflahæsti togari landsins árið 1965. og var það togarinn Harðbakur EA. Þetta kemur kanski mönnum á óvart sérstaklega þar sem enginn giskaði á togara að norðan.
Ég Mun fjalla nánar um Harðbak EA síðar.
Hérna í stikunni til hliðar er flokkur sem heitir "Gömul Tíð". inní honum er nokkrir pistlar sem allir tengjast afla nokkuð langt aftur í tímann. Ég fjallaði um Sigurð ÍS og Maí GK í tveimur sitthvorum pistlunum og fór þá yfir aflann á þeim báðum mánuð fyrir mánuð.
Í gestabókinni hérna á síðunni þá skrifaði Óskar M Ólafsson, og bar fram eftirfarandi spurningu. " Hvað skyldi Markús á Júpiter haft í þessa þróttmiklu dalla árið 1965?".
Mjög flott orðuð spurning. og mér er það sjálfsagt verkefni að svara þessu.
Júpiter RE var einn af 6 togurum sem yfir 3000 tonn fóru árið 1965. og varð Júpiter RE reyndar 4 aflahæsti togarinn það ár.
Mánuð fyrir mánuð leit árið svona út hjá Júpiter RE.
Janúar. Enginn afli er skráður á togarann
Febrúar: Ein löndun 233 tonn,
Mars: Landaði einu sinni 165 tonni,
Apríl: Landaði í ´þýskalandi 203 tonni í einni ferð
Maí : Landaði einu sinni 262 tonni, fullfermi.
Júní: Mokveiði, landaði þrisvar alls 692 tonni eða um 231 tonn í löndun. Þessi mánuður hjá Júpiter RE var ansi góður, Togarinn var næstaflahæsti togarinn í þessum mánuði, Kaldbakur EA varð hæstur með yfir 700 tonn.
Júlí: Landaði tvisvar alls 431 tonni eða 215,5 tonn í löndun
Ágúst: Mjög góður mánuður, landaði tvisvar alls 518 tonnum eða 259 tonn í löndun.
September: Byrjaði að sigla, og allar landanir á haustinu árið 1965 voru silgt, mestmegnis til þýskalands. Landaði einu sinni alls 256 tonnum.
Október: Landaði einu sinni 153 tonnum.
Nóvember: Landaði einu sinni 92 tonnum.
Desember : landaði einu sinni 181 tonnum
Heildaraflinn hjá Júpiter RE var því 3183,6 tonn í einungis 15 sjóferðum eða sem svarar 212,2 tonn í löndun.
SVo bendi ég á að í flokknum "Gömul tíð" þá er hægt þar að bera saman þessa þrjá togara. mánuð fyrir mánuð, fyrir þá sem hafa gaman af því.
Eins og sést á þessu stutta yfirliti og það kemur jafnframt fram að ofan, þá varð Júpiter RE 4 aflahæsti togarinn árið 1965. og ætla að koma með smá spurningu í lokinn.
Maí GK varð hæstur, Sigurður ÍS annar, Júpiter RE fjórði, enn hvaða togari varð þriðji aflahæsti togarinn árið 1965?.
