Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
23.09.2008 15:52
Tveir á leið í pottinn
Myndir Reynir Sveinsson.
Reynir Sveinsson sem er pabbi minn, sendi mér myndir af komu tveggja báta sem eru á leið til Danmerkur í pottinn. Eftirfarandi texti fylgdi með . Þakka ég pabba fyrir myndirnar.
þessir tveir komu til Sandgerðishafnar í bræluni í gær er þeir voru á leið frá Njarðvík til Danmerkur, þar sem þeir verða settir í brotajárn. Þegar þeir voru komnir vestur fyrir Garðskaga slittnaði önnur festingin, svo það var haldið til hafnar í Sandgerði þar sem gerðar voru endurbætur á festingum í stefni Hannesar Andréssonar SH 747. en önnur festing hafði verið í akkerisbúnað sem brást og akkerið fór í sjóin og var svo hift uppí gálgan á Tjaldanesi eftir að lokið var við að festa dráttarvírin aftur var haldið á stað til Danmerkur. Að sögn Magnúsar Danélssonar sem er skipstjóri á Tjaldanesi í þessari síðustu ferð skipana eru þeir með tvo 500 metra langa dráttarvíra
