Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
02.10.2008 14:41
Könnun um Happadís GK
Mynd Gísli Reynisson
Eins og hægt var að lesa um í lokalistanum hjá krókabátunum þá náði Happadís GK því marki að komast inná topp 10. og gott betur því báturinn náði að komast í 6 sæti listans. Enn þótt báturinn hafi náð því á endasprettinum þá er ekki þar með sagt að það hafi verð eitthvað auðvelt verk. þónokkurt bras var að komast inná efstu 10 , Því þar voru t.d Háey II ÞH, Sirrý ÍS, Bíldsey SH, Þórkatla GK, Hafdís GK og fleiri. Af þessum bátum þá voru það einungis Bíldsey SH sem hafði betur enn Happadís GK, og Narfi SU.
ÉG setti inn könnun um Höppudís GK þar sem spurt var hvort báturinn kæmist inná topp 10?.
svörun var nokkuð góð, alls svöruðu 127 manns, og niðurstöður úr þeirri könnun var eftirfarandi.
11 sögðu að könnuninn væri heimskuleg, eða 8,66%
13 sögðu Nei ekki séns eða 10,24%
10 sögðu nær topp 15 eða 7,87%
12 sögðu nei eða 9,45%
21 sögðu já á topp 5 eða 16,54 %
60 manns sögðu já eða 47,24%
Ef jáin eru borin saman við Nei þá er niðuststaðan þannig að tæp 64% kjósenda sögðu já , enn tæp 28% sögðu nei.
Og því má ljóst vera að þeir sem kusu höfðu mikla trú á að Sverri og áhöfn Höppudísar GK myndi takast markmiðið sitt. Og er ástæða til þess að óska þeim til hamingju með það
